Héraðsdómur Vestfjarða
Dómur 19. júní 2006.
Mál nr. S-25/2006:
Ákæruvaldið
(Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari)
gegn
Ólafi Helga Ólafssyni
Lykilorð
Útdráttur
Ákærði var dæmdur í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir hótanir við lögreglumenn.
Mál þetta sem var dómtekið í dag höfðaði ríkissaksóknari með ákæru 26. maí 2006 á hendur Ólafi Helga Ólafssyni, f. 15. september 1971, Hlíðarvegi 43, Ísafjarðarbæ, „fyrir brot gegn valdstjórninni, framin á Ísafirði, aðfaranótt laugardagsins 18. mars 2006:
- Með því að hafa, í lögreglubifreið á leið frá Hlíðarvegi 43 áleiðis á lögreglustöðina Hafnarstræti 1, hótað lögreglumanninum A líkamsmeiðingum og lífláti og lögreglumanninum B lífláti meðan lögreglumennirnir voru að flytja ákærða á lögreglustöð.
- Með því að hafa í fangageymslu lögreglustöðvarinnar að Hafnarstræti 1, hótað lögreglumanninum A, sem þar var að sinna skyldustörfum, að taka föður hans af lífi.
Hótanir ákærða voru til þess fallnar að vekja lögreglumönnunum ótta um velferð sína og fjölskyldna sinna.
Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 11. gr. laga nr. 101/1976 og 32. gr. laga nr. 82/1998.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“
Ákærði hefur komið fyrir dóm og játað sök. Hann tók þó fram að hann myndi ekki glöggt eftir atvikum.
Með játningu ákærða og með hliðsjón af gögnum málsins þykir nægilega sannað að hann hafi framið þá háttsemi sem í ákæru greinir og varðar við þar tilgreint refsiákvæði.
Ákærði hefur ekki sætt refsingum.
Ekki verður framhjá því litið að ákærði viðhafði alvarlegar hótanir, eins og greinir í ákæru. Verður ekki til þess ætlast að þeir sem fyrir þeim urðu tækju þær sem meiningarlaust rugl, þótt ákærði væri ölvaður er hann setti þær fram. Hins vegar verður litið til þess að ákærði kveðst þegar daginn eftir hafa tekið fram við skýrslutöku, þótt þess sé ekki getið í skýrslu um framburð hans, að hann hefði ekki meint neitt með hótununum og hann kveðst hafa beðið viðkomandi afsökunar, eftir að ákæra var birt honum.
Með þetta í huga verður ákærði dæmdur til að sæta fangelsi í einn mánuð, sem rétt er að skilorðsbinda eins og greinir í dómsorði.
Dóminn kveður upp Erlingur Sigtryggsson dómstjóri.
Dómsorð:
Ákærði, Ólafur Helgi Ólafsson, sæti fangelsi í einn mánuð, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum 2 árum frá uppsögu þessa dóms, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Erlingur Sigtryggsson