Héraðsdómur Vestfjarða
Dómur 21. september 2006.
Lykilorð
Útdráttur
Viðurkennt var með dómi að M væri ekki faðir B
Mál þetta, sem var dómtekið 21. júní sl., höfðaði K fyrir hönd ólögráða sonar síns, B með stefnu birtri í Lögbirtingablaði 19. maí 2006, gegn M, að sögn með óþekkt heimilisfang og dvalarstað í Póllandi.
Fyrir hönd stefnanda eru gerðar þær kröfur að dæmt verði að stefndi sé ekki faðir hans. Þá er krafist málskostnaðar úr ríkissjóði, sbr. 11. gr., sbr. 22. gr. laga nr. 76/2003.
Af hálfu stefnanda er málavöxtum lýst svo að við fæðingu hans hafi móðir hans verið í hjúskap með stefnda, en þau hafi gifst þann 31. desember 1988. Móðir hans hafi flutt frá Póllandi til Íslands í nóvember 1997, en þá hafi allar forsendur verið brostnar fyrir áframhaldandi hjúskap hennar og stefnda. Hafi þau slitið samvistum í júlí 1996. Þeim hafi verið veittur lögskilnaður í Póllandi 21. september 2005.
Móðir stefnanda hafi verið í sambúð með núverandi sambýlismanni sínum frá því á árinu 1998. Stefnandi hafi fæðst 24. júní 2002, en stefndi hafi verið skráður faðir hans hjá Hagstofu Íslands, með skírskotun til feðrunarreglna barnalaga. Er byggt á því af hálfu stefnanda að stefndi geti ekki verið faðir hans.
Tekið er fram að ekki hafi tekist að birta stefnu í Póllandi, þar sem dvalarstaður stefnda þar sé óþekktur.
Af hálfu stefnanda er vísað til 1. og 3. mgr. 21. gr. barnalaga nr. 76/2003. Sé óumdeilt að núverandi sambýlismaður móður stefnanda sé raunverulegur faðir hans. Sé því nauðsynlegt að höfða mál þetta.
Af hálfu stefnda var þing ekki sótt.
Með tilliti til málavaxta eins og þeim hefur verið lýst hér að ofan og þess að núverandi sambýlismaður móður stefnanda hefur viðurkennt faðerni hans, þykir ekki varhugavert að fallast á dómkröfur stefnanda án frekari gagnaöflunar. Verður viðurkennt að stefndi sé ekki faðir stefnanda.
Málskostnaður greiðist úr ríkissjóði, þ.m.t. þóknun lögmanns stefnanda, Björns Jóhannessonar hdl., 124.500 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum. Útlagður kostnaður nemur 34.668 krónum.
Dóm þennan kveður upp Erlingur Sigtryggsson dómstjóri.
Dómsorð:
Viðurkennt er að stefndi, M, sé ekki faðir stefnanda, B.
Málskostnaður stefnanda, 159.168 krónur, greiðist úr ríkissjóði, þ.m.t. þóknun lögmanns stefnanda, Björns Jóhannessonar hdl., 124.500 krónur Erlingur Sigtryggsson