Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 20. mars 2026.
Mál nr. S-60/2026:
Ákæruvaldið
(Tinna Sif Guðmundsdóttir fulltrúi)
gegn
Fabian Przybylski
Lykilorð
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en hann hafði játað brot sitt skýlaust við aðalmeðferð málsins. Var honum gert að sæta fangelsi í 3 mánuði, skilorðsbundnum til tveggja ára. Þá var honum jafnframt gert að greiða 800.000 krónur í miskabætur, ásamt vöxtum og dráttarvöxtum, sem og allan kostnað sem leiddi af meðferð málsins.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var þann 12. mars sl., var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum í Vestmannaeyjum 4. febrúar 2026, á hendur Fabian Przybylski, […], fyrir líkamsárás með því að hafa, sunnudaginn 3. mars 2024, við Vestmannabraut 28 í Vestmannaeyjum, veist að A, sparkað í fætur og ýtt í bak hans þannig að A féll í jörðina og slegið hann þremur hnefahöggum í höfuðið þar sem hann lá í jörðinni, allt með þeim afleiðingum að A hlaut kúlu aftan við eyra, sár fyrir ofan hægra auga, skrámur fyrir ofan og neðan hægra auga og nefbrot.
Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með síðari breytingum.
M: 319-2024-000xxx Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Einkaréttarkrafa:
Þess er krafist af hálfu A, að ákærði verði dæmdur til að greiða honum skaðabætur að fjárhæð 1.441.800,- með vöxtum samkvæmt 8. gr., sbr. 1. málsl. 4. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 3. mars 2024 til þess dags þegar mánuður er liðinn frá því bótakrafa var kynnt fyrir ákærða en með dráttarvöxtum skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Þá er krafist málskostnaðar fyrir héraðsdómi auk virðisaukaskatts á málflutningsþóknun, komi til flutnings málsins þar.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa.
Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 15. janúar 2026, var ákærða gert að sæta fangelsi í 60 daga með dómi Héraðsdóms Suðurlands 28. febrúar 2024 vegna ýmissa brota. Var honum jafnframt gert að greiða 100.000 króna fésekt og hann sviptur ökuréttindum í 6 mánuði við sama tilefni, en fangelsisrefsingin var skilorðsbundin til tveggja ára. Hefur ákærði með brotum sínum nú rofið skilorð framangreinds dóms. Verður dómurinn því dæmdur upp og ákærða gerð refsing í einu lagi, sbr. 60. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Undir meðferð málsins játaði ákærði brot sín skýlaust. Horfir það honum til málsbóta, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Á hinn bóginn er einnig til þess að líta að árás ákærða var fólskuleg og beindist m.a. að höfði brotaþola. Vegur það ákærða til refsiþyngingar, sbr. 1. og 3. tölul. sama ákvæðis.
Með hliðsjón af framangreindu og sakarefni þessa máls þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 3 mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði mótmælti bótakröfu þeirri sem getið er um í ákæru, en undir meðferð málsins var höfuðstóll kröfunnar lækkaður í 912.415 krónur. Brotaþoli á rétt til miskabóta úr hendi ákærða á grundvelli a-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Við mat á miskabótum er horft til alvarleika árásarinnar, sem beindist m.a. að höfði brotaþola og þeirra líkamlegu afleiðinga sem staðfestar eru með læknisvottorði, en ekki liggja fyrir gögn um andlegar afleiðingar verknaðarins. Gögn sem eru ætluð til stuðnings kröfu vegna fjárhagstjóns eru óglögg og sýnast vera á pólsku og virðast tilgreina fjárhæðir í öðrum gjaldmiðli en íslenskum krónum, sem ekki er upplýst frekar um. Verða ekki dæmdar bætur vegna fjárhagstjóns í málinu. Að framangreindu virtu þykja miskabætur til handa brotaþola hæfilega ákvarðaðar 800.000 krónur, ásamt vöxtum og dráttarvöxtum svo sem nánar greinir í dómsorði, en af gögnum málsins verður ekki annað ráðið en að bótakrafan hafi fyrst verið birt ákærða við þingfestingu málsins þann 12. mars 2026.
Þá er rétt að ákærði greiði brotaþola 100.000 krónur í málskostnað og hefur þá verið litið til virðisaukaskatts.
Ákærði greiði allan sakarkostnað málsins, þar með talið þóknun skipaðs verjanda síns á rannsóknarstigi málsins, Jóhanns Péturssonar lögmanns, 247.380 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 226.099 krónur í annan sakarkostnað .
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Tinna Sif Guðmundsdóttir saksóknarfulltrúi.
Sigurður G. Gíslason dómstjóri kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Fabian Przybylski, sæti fangelsi í 3 mánuði en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði greiði A, 800.000 krónur í miskabætur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 3. mars 2024 til 12. apríl 2026, en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærði greiði A, 100.000 krónur í málskostnað að teknu tilliti til virðisaukaskatts.
Ákærði greiði sakarkostnað, alls 473.479 krónur, þ.m.t. þóknun tilnefnds verjanda síns á rannsóknarstigi, Jóhanns Péturssonar lögmanns, sem er 247.380 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Sigurður G. Gíslason