Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-100/2026:

Lögreglustjórinn á Suðurlandi

(Rósamunda Jóna Baldursdóttir fulltrúi)

gegn

Ahmed Albayyouk

(Leó Daðason lögmaður)

Umferðarlagabrot.

Ákærði var sakfelldur fyrir akstur sviptur ökurétti eftir að hafa játað háttsemi sína skýlaust undir meðferð málsins. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á Suðurlandi 26. febrúar 2026, á hendur Ahmed Albayyouk, […], fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, föstudaginn 20. febrúar 2026, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Hafnarveg við Þorlákshafnarveg í Sveitarfélaginu Ölfusi, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

M: 318-2026-xxxxx Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 96. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu sakarkostnaðar.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar málsvarnarþóknunar sér til handa.

Ákærði er fæddur í desember 2000. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 25. febrúar 2026, gekkst ákærði undir greiðslu fésektar með lögreglustjórasátt 18. mars 2024 vegna aksturs sviptur ökurétti. Þá gekkst ákærði aftur undir greiðslu fésektar með lögreglustjórasátt 2. október sama ár. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 2. apríl 2025 var ákærða gert að sæta fangelsi í 60 daga, meðal annars vegna aksturs sviptur ökurétti. Nú síðast var ákærða gert að sæta fangelsi í 60 daga með dómi Héraðsdóms Suðurlands 26. febrúar 2026 vegna aksturs sviptur ökurétti. Að öðru leyti hefur sakarferill ákærða ekki þýðingu við úrlausn þessa máls.

Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður því lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í fjórða sinn, eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga, gerst sekur um akstur sviptur ökurétti.

Brot ákærða samkvæmt ákæru voru framin fyrir uppkvaðningu framangreinds dóms frá 26. febrúar sl. Verður ákærða því dæmdur hegningarauki vegna þeirra brota nú.

Undir meðferð málsins játaði ákærði brot sín skýlaust. Horfir það honum til málsbóta, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og dómvenju og þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Leós Daðasonar lögmanns, 176.700 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.

Karitas Rán Garðarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Ahmed Albayyouk, sæti fangelsi í 30 daga.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Leós Daðasonar lögmanns, 176.700 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Karitas Rán Garðarsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 1. mgr. 70. gr.71. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 1. mgr. 58. gr.1. mgr. 96. gr.