Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 12. maí 2017.
Mál nr. S-49/2017:
S-49/2017:
Ákæruvaldið
(Elimar Hauksson fulltrúi)
gegn
Henriki Erlendssyni
Lykilorð
Útdráttur
Ákærði var fundinn sekur um þjófnað og honum gert að sæta fangelsi í 30 daga.
Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið fimmtudaginn 27. apríl sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi þann 14. mars sl., á hendur Henriki Erlendssyni, til heimilis að Bríetartúni 32, Reykjavík, en til dvalar að Vindakór 4, Kópavogi, „fyrir þjófnað: með því að hafa, þriðjudaginn 18. október 2016 í vínbúð ÁTVR við Vallholt á Selfossi stolið tveimur pelum af Tinda vodka samtals að verðmæti kr. 7.518,- sem ákærði faldi innanklæða og yfirgaf síðan verslunina án þess að greiða fyrir umrætt áfengi. Telst brot ákærða varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940 Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir lögmæta birtingu ákæru þann 6. apríl sl., ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærða fjarstöddum. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.
Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði fjórum sinnum á síðustu fimm árum verið fundinn sekur um auðgunarbrot, síðast með dómi uppkveðnum 22. júní 2016, þar sem ákærða var gert að sæta fangelsi í fimm mánuði. Að öðru leyti hefur sakaferill ákærða ekki áhrif við ákvörðun refsingar í máli þessu.
Refsing ákærða er hæfilega ákveðin 30 daga. Að virtum sakaferli ákærða þykja ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna. Engan sakarkostnað leiddi af máli þessu.
Sólveig Ingadóttir, löglærður aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði, Henrik Erlendsson, sæti fangelsi í 30 daga.
Sólveig Ingadóttir.