Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 26. október 2010.
Mál nr. S-391/2010:
Ákæruvaldið
(Jónína Guðmundsdóttir fulltrúi)
gegn
Hannesi Val
Lúðvíkssyni og
Jónasi Hauki
Arngrímssyni
svofelldur
d ó m u r :
(Sigurður Sigurjónsson hrl)
Lykilorð
Ávana- og fíkniefni. Þjófnaður.
Útdráttur
Tveir menn sakfelldir fyrir ræktun á kannabisplöntum og annar þeirra sakfelldur fyrir þjófnað á orkuforða sem hann hagnýtti til ræktunarinnar.
Mál þetta, sem þingfest var 30. september sl. og dómtekið 11. október sl. var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 14. ágúst 2010 á hendur Hannesi Val Lúðvíkssyni, kt. 000000-0000, Fossvegi 2, Selfossi og Jónasi Hauki Arngrímssyni, kt. 000000-0000, Teigaseli 7, Reykjavík „I. gegn ákærðu báðum fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni með því að hafa um nokkurt skeið fram til fimmtudagsins 16. júlí 2009 í bílskúr við Smáratún 4 á Selfossi, sameiginlega staðið að ræktun 20 kannabisplantna sem samtals vógu 1,38 g, en umrædd fíkniefni fundust við húsleit lögreglu í bílskúrnum að kvöldi framangreinds dags.
Telst brot ákærðu varða við 2. gr., sbr. 4., 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 með síðari breytingum og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001 með síðari breytingum.
II. gegn ákærða Hannesi fyrir þjófnað
með því að hafa í júlí 2009 tengt fram hjá rafmagnsmæli í Smáratúni 4 á Selfossi, sem einnig mældi rafmagnsnotkun í umræddum bílskúr, sbr. ákærulið I, og þannig hagnýtt sé á ólögmætan hátt orkuforða til ofangreindrar fíkniefnaræktunar.
Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til að sæta upptöku á framangreindum fíkniefnum (efnaskrá nr. 16088), og áhöldum til ræktunar kannabisplantna, sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, sbr. munaskrá lögreglu nr. 72074 og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Ákærðu mættu við þingfestingu málsins og fengu frest til að taka afstöðu til sakarefnisins. Ákærðu mættu aftur 11. október sl. og játuðu báðir sök. Farið var með málið samkvæmt ákvæðum 164. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Um málavexti vísast til ákæruskjals. Játning ákærðu er í samræmi við önnur gögn málsins og verða ákærðu sakfelldir fyrir brot sín en það er í ákæru rétt fært til refsiákvæða. Ákærðu hafa með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.
Samkvæmt sakavottorði ákærða Hannesar Vals sættist hann á greiðslu 45.000 króna sektar fyrir brot gegn ávana- og fíkniefnalöggjöf árið 2004. Að öðru leyti skiptir sakaferill hans ekki máli við ákvörðun refsingar í máli þessu.
Samkvæmt sakavottorði ákærða Jónasar Hauks var hann tvívegis dæmdur til sektargreiðslu fyrir brot gegn ávana- og fíkniefnalöggjöf árið 2006, samtals 82.500 krónur. Að öðru leyti skiptir sakaferill hans ekki máli við ákvörðun refsingar í máli þessu.
Refsing ákærða Hannesar Vals þykir hæfilega ákveðin fangelsi í 2 mánuði en fullnustu refsingarinnar skal frestað og skal hún niður falla að liðnum 2 árum frá birtingu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. Ákærði greiði jafnframt 100.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins en sæti ella fangelsi í 8 daga.
Refsing ákærða Jónasar Hauks þykir hæfilega ákveðin 100.000 króna sekt til ríkissjóðs sem greiðist innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins en ella sæti ákærði fangelsi í 8 daga.
Með vísan til þeirra lagaákvæða er í ákæru greinir ber að gera upptækar 20 kannabisplöntur, samtals 1,38 g og áhöld til ræktunar á kannabisplöntum samkvæmt munaskrá lögreglu nr. 72074.
Með vísan til 1. mgr. 219. gr. laga um meðferð sakamála ber að dæma ákærðu til að greiða in solidum þóknun skipaðs verjanda síns, Sigurðar Sigurjónssonar hrl., 100.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Hjörtur O. Aðalsteinsson dómstjóri kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Hannes Valur Lúðvíksson sæti fangelsi í 2 mánuði en fullnustu refsingarinnar skal frestað og skal hún niður falla að liðnum 2 árum frá birtingu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. Ákærði greiði jafnframt 100.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins en sæti ella fangelsi í 8 daga.
Ákærði Jónas Haukur Arngrímsson, greiði 100.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins en sæti ella fangelsi í 8 daga.
Upptækar eru gerðar 20 kannabisplöntur, samtals 1,38 g og áhöld til ræktunar á kannabisplöntum samkvæmt munaskrá lögreglu nr. 72074.
Ákærðu greiði in solidum þóknun skipaðs verjanda síns, Sigurðar Sigurjónssonar hrl., 100.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Hjörtur O. Aðalsteinsson.