Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 26. febrúar 2008.
Mál nr. S-33/2008:
Ákæruvaldið
(Gunnar Örn Jónsson ftr)
gegn
Sigurjóni Vilhjálmssyni
svofelldur
d ó m u r :
(sjálfur)
Lykilorð
Eignaspjöll. Nytjastuldur. Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing.
Útdráttur
Ákært fyrir eignaspjöll og nytjastuld. Ákærði játaði sök. Dæmdur til greiðslu 20.000 króna sektar.
Mál þetta, sem þingfest var þann 21. febrúar sl. og dómtekið sama dag, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 4. febrúar 2008, á hendur Sigurjóni Vilhjálmssyni, kt. 000000-0000, Hlemmiskeiði II, Skeiða- og Gnúpverjahreppi, „fyrir eignaspjöll og nytjastuld með því að hafa, að kvöldi þriðjudagsins 28. ágúst 2007 rifið ventil úr felgu á vinstra framhjólbarða bifreiðarinnar US-613 og þannig hleypt lofti úr honum, þar sem bifreiðin stóð á bifreiðastæði við Austurveg 28 á Selfossi og fyrir að hafa umrætt sinn í heimildarleysi tekið bifreiðina VF-244 er stóð á sama bílastæði og aka henni á bak við Suðurlandsvideó, Austurvegi 21 þar sem ákærði skildi við bifreiðina, en tók kveikjuláslykla hennar og henti síðar sama kvöld í Ölfusá.
Teljast brot ákærða varða við 1. mgr. 257. gr. og 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Í málinu gerir Fylkir Þorgeir Kjeld Sævarsson, kt. 000000-0000 kröfu um að ákærða verði með dómi gert að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 1.808,- ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga frá tjónsdegi en síðan dráttarvexti samkæmt 9. gr. sömu laga frá birtingu kröfu til greiðsludags.“
Ákærði, sem kom fyrir dóminn, játaði brot sín greiðlega fyrir dóminum. Er játning hans í samræmi við önnur gögn málsins og verður hann sakfelldur fyrir brot sín en þau eru í ákæru rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.
Farið var með málið samkvæmt ákvæðum 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og ákærða, sem óskaði ekki eftir verjanda, hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Um málavexti vísast til ákæruskjals.
Samkvæmt sakavottorði ákærða sem liggur frammi í málinu hefur honum ekki verið gerð refsing áður.
Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 20.000 króna sekt sem ákærða ber að greiða innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms að telja en sæta ella fangelsi í tvo daga.
Þá hefur ákærði samþykkt framkomna bótakröfu sem honum ber að greiða eins og í dómsorði greinir.
Enginn sakarkostnaður hlaust af máli þessu.
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð:
Ákærði, Sigurjón Vilhjálmsson, greiði 20.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms að telja en sæti ella fangelsi í tvo daga.
Ákærði greiði Fylki Þorgeiri Kjeld Sævarssyni, kt. 000000-0000, 1.808 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 frá 28. ágúst 2007 til 21. mars 2008 en með vöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.
Ástríður Grímsdóttir.