Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-26/2008:

Ákæruvaldið

(Gunnar Örn Jónsson ftr)

gegn

Unnari Má Hjaltasyni

svofelldur

d ó m u r :

(enginn)

Sakfellt fyrir vörslur fíkniefna.

Mál þetta, sem þingfest var í dag og dómtekið sama dag, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 4. febrúar 2008 á hendur Unnari Má Hjaltasyni, kt. 000000-0000, Heiðarbrún 22, Stokkseyri, „fyrir fíkniefnabrot með því að hafa, aðfaranótt sunnudagsins 16. desember 2007 haft í sinni vörslu á veitinga- og skemmtistaðnum Draugabarnum á Stokkseyri, 0,44 g af amfetamíni er lögreglan fann við leit á ákærða umrætt sinn.

Telst brot ákærða varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr lög nr. 60/1980, 75/1982, 13/1985, 68/2001 og 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001 með síðari breytingum.

Þess er krafist, að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á framangreindum fíkniefnum (efnaskrá nr. 12942) en lagt var hald á greind fíkniefni samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“

Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir löglega birta ákæru þann 19. febrúar 2008 ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærða fjarstöddum. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði framdi brot það sem greinir í ákæru og er það réttilega fært til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Ákærði á langan sakarferil að baki og þrisvar áður verið gerð refsing vegna brota gegn lögum um ávana- og fíkniefni.

Refsing ákærða er nú ákveðin 60.000 króna sekt til ríkissjóðs, sem ákærða ber að greiða innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæta ella fangelsi í sex daga.

Ákærði sæti upptöku á 0,44 g af amfetamíni.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Unnar Már Hjaltason, greiði 60.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæti ella fangelsi í sex daga.

Ákærði sæti upptöku á 0,44 grömmum af amfetamíni.

Ástríður Grímsdóttir.

Heimildaskrá