Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-17/2008:

Ákæruvaldið

(Gunnar Örn Jónsson ftr)

gegn

Einar Erni Sigurðssyni

X

svohljóðandi

d ó m u r:

Mál

þetta, sem þingfest var þann 22. nóvember 2007 sl. og dómtekið þann 23. janúar

sl., gagnvart ákærða Einari Erni, var höfðað með ákæru lögreglustjórans á

Selfossi, dagsettri 19. nóvember 2007, á hendur Einari Erni Sigurðssyni,

kt. 000000-0000, Seljavegi 15, Reykjavík, og X, Reykjavík,

I.

gegn ákærða Einari fyrir

þjófnað

með því að hafa mánudaginn 2. júlí 2007 stolið seðlaveski, í eigu Eyþórs

Fannars Valgeirssonar, kt. 000000-0000, er innihélt 1.500 kr. í reiðufé, debet-

og kredit-greiðslukort, en veskið fann ákærði á gólfi framan við útgang í

verslun Húsasmiðjunnar á Selfossi.

Telst brot ákærða varða við 244. gr. almennra

hegningarlaga nr. 19, 1940, en til vara við 246. gr. sömu laga.

II.

gegn ákærða Einari fyrir fjársvik

með því að hafa síðar sama dag, í myndbandaleigunni Ísmynd, Sunnumörk 2,

Hveragerði, þrisvar sinnum notað stolin greiðslukort úr veski því er frá

greinir í ákærulið I., í heimildarleysi og auðgunarskyni til kaupa á tóbaki,

símainneignum og lottómiðum, samtals að fjárhæð kr. 65.900,-.

Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 248. gr.

almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

III.

gegn ákærðu X  fyrir hlutdeild í fjársvikum

með því að hafa sem starfsmaður myndbandaleigunnar Ísmyndar, Sunnumörk 2,

Hveragerði, afgreitt meðákærða Einar um vörur þær er frá greinir í ákærulið

II., þrátt fyrir að ákærðu væri ljóst að umrædd kaup fóru fram með stolnum

greiðslukortum.

Telst brot ákærðu varða við 1. mgr. 248. gr. sbr.

(Brynjar Níelsson hrl)

Fjársvik. Ávana- og fíkniefni. Þjófnaður.

Ákært fyrir þjófnað, fjársvik og vörslur fíkniefna. Ákærði rauf skilorð. Dæmdur í tveggja mánaða fangelsi skilorðsbundið þar sem ákærði er að koma lífi sínu til betri vegar auk þess að greiða skaðabætur og sakarkostnað.

Mál þetta, sem þingfest var þann 22. nóvember 2007 sl. og dómtekið þann 23. janúar sl., gagnvart ákærða Einari Erni, var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 19. nóvember 2007, á hendur Einari Erni Sigurðssyni, kt. 000000-0000, Seljavegi 15, Reykjavík, og X, Reykjavík, I. gegn ákærða Einari fyrir þjófnað með því að hafa mánudaginn 2. júlí 2007 stolið seðlaveski, í eigu Eyþórs Fannars Valgeirssonar, kt. 000000-0000, er innihélt 1.500 kr. í reiðufé, debet- og kreditgreiðslukort, en veskið fann ákærði á gólfi framan við útgang í verslun Húsasmiðjunnar á Selfossi.

Telst brot ákærða varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, en til vara við 246. gr. sömu laga.

II. gegn ákærða Einari fyrir fjársvik

með því að hafa síðar sama dag, í myndbandaleigunni Ísmynd, Sunnumörk 2, Hveragerði, þrisvar sinnum notað stolin greiðslukort úr veski því er frá greinir í ákærulið I., í heimildarleysi og auðgunarskyni til kaupa á tóbaki, símainneignum og lottómiðum, samtals að fjárhæð kr. 65.900,-.

Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

III. gegn ákærðu X fyrir hlutdeild í fjársvikum

með því að hafa sem starfsmaður myndbandaleigunnar Ísmyndar, Sunnumörk 2, Hveragerði, afgreitt meðákærða Einar um vörur þær er frá greinir í ákærulið II., þrátt fyrir að ákærðu væri ljóst að umrædd kaup fóru fram með stolnum greiðslukortum.

Telst brot ákærðu varða við 1. mgr. 248. gr. sbr. 1. mgr. 22. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

IV. gegn ákærða Einari fyrir fíkniefnabrot

með því að hafa sama dag og frá greinir í ákærulið I., á bifreiðastæði við Þrastalund, Grímsnes- og Grafningshreppi, haft í vörslum sínum í bifreiðinni AJ- 243 2,27 g af hassi er lögregla fann við leit í bifreið ákærða umrætt sinn.

Telst brot ákærða varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, 75/1982, 13/1985, 68/2001 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001 með síðari breytingum.

Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar og að ákærða Einari verði gert að sæta upptöku á framangreindum fíkniefnum (efnaskrá 11982), samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.

Einkaréttarkrafa

Eyþór Fannar Valgeirsson, kt. 000000-0000 gerir kröfu um að ákærða Einari verði með dómi gert að greiða skaðabætur, samtals að fjárhæð kr. 24.000,- vegna ákæruliða I. og II.“

Ákærða X  kom fyrir dóminn þann 10. janúar sl. og játaði sök. Með vísan til 24. gr. laga um meðferð opinberra mála var þáttur ákærðu X  skilinn frá þætti ákærða Einars Arnar og hennar þáttur dæmdur sérstaklega.

Ákærði Einar kom fyrir dóminn þann 22. nóvember sl., ásamt verjanda sínum, og óskaði ákærði þá eftir fresti til að taka afstöðu til ákærunnar. Var málinu því frestað til fimmtudagsins 6. desember kl. 11.15. Þann dag mætti ákærði ekki fyrir dóminn. Verjandi ákærða upplýsti dóminn um að ákærði Einar væri líklega farinn af landi brott og hafði verjandi hans ekki vitneskju um hvar hann væri niðurkominn. Ákærði kom aftur fyrir dóminn þann 23. janúar sl., ásamt skipuðum verjanda sínum, og játaði sök greiðlega. Þá samþykkti ákærði framkomna bótakröfu eins og í ákæru greinir.

Málið var tekið til dóms samkvæmt 1. mgr. 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála eftir að ákærða og sækjanda hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um refsiákvörðun og lagaákvæði.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði framdi brot það sem greinir í ákæru og er það réttilega fært til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Ákærði krefst þess að verða dæmdur til vægustu refsingar eins og lög leyfa. Ákærði á langan sakaferil að baki allt frá árinu 1990. Hefur honum margoft verið gerð refsing fyrir hegningarlagabrot, brot á lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlagabrot. Ákærði var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi þann 27. nóvember 2007 fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Þá var ákærði dæmdur 28. nóvember 2007 til greiðslu 70.000 króna sektar fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna og gert að greiða 70.000 króna sekt til ríkissjóðs auk þess að vera sviptur ökurétti í þrjá mánuði. Ákærði kveðst hafa verið án fíkniefna frá því í júní 2007 eða í rúmt hálft ár. Þá kveðst hann stunda vinnu og sjá sér farborða auk þess sem hann sé að vinna sig út úr fíkniefnavandanum. Kveður hann hegningarlagabrot sín vera beina afleiðingu af fíkniefnaneyslu sem hann sé nú hættur. Þá vísar hann til þess að dómur frá 27. nóvember 2007 hafi verið skilorðsbundinn, meðal annars á þeim forsendum að hann hafi lagt fram gögn þess efnis að hann hafi stundað vinnu frá 7. september 2007 og staðið sig með prýði og reynst bæði stundvís og áreiðanlegur. Brot þau sem ákærði hefur verið sakfelldur fyrir nú eru framin áður en dómur var kveðinn upp í ofangreindu máli og ber því að ákvarða refsingu ákærða með vísan til 78. gr. almennra hegningarlaga eins og dæmt hefði verið um öll brotin í einu lagi. Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í tvo mánuði. Með vísan til þess sem að ofan segir þykir mega skilorðsbinda refsinguna, sbr. 60. gr. hegningarlaga, og skal hún niður falla að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.

Með vísan til 165. gr. almennra hegningarlaga ber að dæma ákærða til að greiða allan sakarkostnað, sem er þóknun skipaðs verjanda hans, Brynjars Níelssonar hæstaréttarlögmanns, sem þykir hæfilega ákveðin 85.407 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti auk ferðakostnaðar 17.040 krónur.

Í málinu gerir Eyþór Fannar Valgeirsson, kt. 000000-0000, kröfu um að ákærða Einari verði með dómi gert að greiða skaðabætur, samtals að fjárhæð 24.000 krónur, vegna ákæruliða I. og II. Ákærði hefur samþykkt framkomna bótakröfu og verður hann því dæmdur til að greiða kröfuna eins og í dómsorði greinir.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði Einar Örn Sigurðsson skal sæta fangelsi í tvo mánuði en fresta skal fullnustu refsingar og hún niður falla að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærði greiði Eyþóri Fannari Valgeirssyni, kt. 000000-0000, skaðabætur, að fjárhæð 24.000 krónur.

Ákærði greiði allan sakarkostnað, sem er þóknun skipaðs verjanda hans, Brynjars Níelssonar hæstaréttarlögmanns, 85.407 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti auk ferðakostnaðar 17.040 krónur.

Ástríður Grímsdóttir.