Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-162/2008:

Ákæruvaldið

(Gunnar Örn Jónsson ftr)

gegn

Kára Kristjánssyni

svofelldur

d ó m u r :

(enginn)

Ávana- og fíkniefni.

Ákært fyrir vörslur fíkniefna. Sakfellt. 60.000 króna sekt dæmd.

Mál þetta, sem þingfest var í dag og dómtekið sama dag, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 17. mars 2008 á hendur Kára Kristjánssyni, kt. 000000-0000, Hlíðartúni 8, Höfn í Hornafirði, „fyrir fíkniefnabrot með því að hafa, aðfaranótt föstudagsins 18. janúar 2008 haft í vörslu sinni, 1,29 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem  lögreglan fann við leit í hanskahólfi bifreiðarinnar NT-935, sem ákærið var farþegi í umrætt sinn og lögregla stöðvaði við umferaðreftirlit á Suðurlandsvegi norðan Ölfusárbrúar.

Telst brot ákærða varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr lög nr. 60/1980, 75/1982, 13/1985, 68/2001 og 2, gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001 með síðari breytingum.

Þess er krafist, að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á framangreindum fíkniefnum (efnaskrá nr. 13178) samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“

Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir löglega birta ákæru þann 27. mars 2008 ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærða fjarstöddum. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði framdi brot það sem greinir í ákæru og er það réttilega fært til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.  Ákærði á nokkurn sakarferil að baki og tvisvar áður verið gerð refsing vegna brota gegn lögum um ávana- og fíkniefni.

Refsing ákærða er nú ákveðin 60.000 króna sekt til ríkissjóðs, sem ákærða ber að greiða innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæta ella fangelsi í sex daga. Þá skal ákærði sæti upptöku á 1,29 g af tóbaksblönduðu kannabisefni.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Kári Kristjánsson, greiði 60.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæti ella fangelsi í sex daga.

Ákærði sæti upptöku á 1,29 g af tóbaksblönduðu kannabisefni.

Ástríður Grímsdóttir.