Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-158/2008:

Ákæruvaldið

(Gunnar Örn Jónsson ftr)

gegn

Kolbrúnu Björnsdóttur

svofelldur

d ó m u r :

(Guðrún Sesselja Arnardóttir hdl)

Líkamsmeiðing af gáleysi.

Ákært fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi. Sakfellt og dæmt í eins mánaðar fangelsi skilorðsbundið í tvö ár auk greiðslu sakarkostnaðar.

Mál þetta, sem þingfest var þann 10. apríl sl. og dómtekið sama dag, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 17. mars 2008, á hendur Kolbrúnu Björnsdóttur, kt. 000000-0000, Birkivöllum 17, Selfossi, „fyrir hegningar- og umferðarlagabrot með því að hafa að morgni fimmtudagsins 18. október 2007 ekið bifreiðinni ZR- 237 vestur Engjaveg á Selfossi um gatnamót Engjavegar og Tryggvagötu með fyrirhugaða akstursstefnu suður Tryggvagötu, án nægilegrar aðgæslu og varúðar og án þess að virða gangbrautarrétt þannig að bifreið ákærðu hafnaði á Sóleyju Olgeirsdóttur, kt. 000000-0000, þar sem hún var á leið yfir gangbraut á Tryggvagötu á gatnamótum við Engjaveg, en umrætt sinn logaði grænt ljós á gangbrautina, með þeim afleiðingum að Sóley hlaut hrufl og smásár yfir vinstri augabrún, eymsli yfir olnboga, tætt sár á hægra hné og brot um hægri axlarlið.

Telst brot ákærðu varða við 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, 1. mgr. 4. gr. og 5. mgr. 26. gr. umferðarlaga nr. 50,1987, sbr. 1. mgr. 100. gr. sömu laga.

Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar.“

Ákærða kom fyrir dóminn við þingfestingu málsins og játaði brot sín greiðlega fyrir dóminum. Er játning hennar í samræmi við önnur gögn málsins og verður hún sakfelld fyrir brot sín en þau eru í ákæru rétt færð til refsiákvæða. Ákærða hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.

Farið var með málið samkvæmt ákvæðum 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Um málavexti vísast til ákæruskjals.

Í vottorði Egils Rafns Sigurgeirssonar læknis, dagsettu 22. janúar 2008, kemur fram að brotaþoli sé ennþá í sjúkraþjálfun vegna axlarinnar og fái verki við álag en það sé þó reiknað með að hún nái sér að fullu í nánustu framtíð. Hún hafi nokkur eymsli í augabrún og frá hné ennþá við álag og þrýsting en einnig sé reiknað með að það gangi til baka að fullu. Í lögregluskýrslu sem gerð var á vettvangi kemur fram að það hafi verið rökkur, slæm lýsing, rigning og skýjað. Ákærða hélt því fram fyrir dóminum að hún hefði ekið varlega en ekki orðið brotaþola vör fyrr en hann lenti á bifreið ákærðu.

Samkvæmt sakavottorði ákærðu hefur henni ekki verið gerð refsing áður.

Með hliðsjón af þeim áverkum sem hlutust af háttsemi ákærðu og aðstæðum öllum auk játningar hennar fyrir lögreglu og dómi þykir refsing hæfilega ákveðin fangelsi í einn mánuð en rétt þykir að skilorðsbinda refsinguna eins og í dómsorði segir.

Með vísan til 165. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 ber að dæma ákærðu til að greiða allan sakarkostnað sem er vegna öflunar læknisvottorðs 7.020 krónur auk þóknunar skipaðs verjanda hennar, Guðrúnar Sesselju Arnardóttur héraðsdómslögmanns, 74.700 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti auk ferðakostnaðar, 9.120 krónur.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð:

Ákærða, Kolbrún Björnsdóttir, sæti fangelsi í einn mánuð en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún niður falla að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms að telja haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærða greiði allan sakarkostnað, samtals 90.840 krónur, þar með talda þóknun skipaðs verjanda síns, 74.700 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 9.120 krónur í ferðakostnað.

Ástríður Grímsdóttir.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.219. gr.
Lög nr. 50/1987 Umferðarlög 1. mgr. 4. gr.5. mgr. 26. gr.1. mgr. 100. gr.
Lög nr. 19/1991 Lög um meðferð opinberra mála 125. gr.165. gr.