Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-95/2007:

95/2007:

Ákæruvaldið

(Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður)

gegn

Árna

Rúnarssyni

X

svohljóðandi

d ó m u r:

(sjálfur)

Tveir menn ákærðir fyrir innbrot og þjófnað á lömpum og bensíni. Báðir játuðu sök. Ákærðu höfðu skilað þýfinu. Ákærðu voru 17 og 18 ára þegar þeir frömdu brotin. Nærri tvö ár liðu frá brotinu og að útgáfu ákæru. Um hegningarauka var að ræða. Ákærðu var ekki gerð sérstök refsing.

Mál þetta var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 11. febrúar 2007 á hendur Árna Rúnarssyni, kt. 000000-0000, Breiðumörk 11, Hveragerði og X, „fyrir neðangreinda þjófnaði framda í Hveragerði, aðfaranótt mánudagsins 4. apríl 2005:

I

með því að hafa, umrætt sinn, í sameiningu brotist inn í gróðurhús að Gróðurmörk 5, með því að fjárlægja rúðu á vesturhlið hússins og stela þaðan 8 gróðurhúsalömpum.

II

með því að hafa skömmu síðar, brotist inn í húsnæði vð Austurmörk 14, með því að spenna upp hurð með kúbeini, og stela þaðan um 35 lítrum af bensíni úr tveimur bensínbrúsum, sem ákærðu hagnýttu sér með því að hella á bifreiða ákærða X. Teljast brot ákærðu varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.

Ákærðu, sem komu fyrir dóminn, játuðu brot sín fyrir greiðlega. Er játning þeirra í samræmi við önnur gögn málsins og verða þeir sakfelldir fyrir þá háttsemi sem í ákæru greinir, en þau eru í ákæru rétt færð til refsiákvæða. Ákærðu hafa með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.

Farið var með málið samkvæmt ákvæðum 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og ákærðu, sem óskuðu ekki eftir verjanda, höfðu verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði Árni Rúnarsson, sem var 17 ára er hann framdi brot það sem hann er sakfelldur fyrir nú, gekkst undir viðurlagaákvörðun þann 7. júlí 2005 og var gert að greiða 50.000 króna sekt fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og 16. september 2005 gekkst hann undir viðurlagaákvörðun og var gert að greiða 28.000 króna sekt fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Brot það sem ákærði hefur verið sakfelldur fyrir nú átti sér stað áður en ákærði gekkst við broti í Héraðsdómi Suðurlands þann 7. júlí 2005 og ber því að ákvarða refsingu samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þar sem um hegningarauka er að ræða. Tæp tvö ár liðu frá því að brotin voru framin og þar til ákæra var gefin út. Ekki hefur verið gefin nein skýring á þeim drætti á málinu hjá lögreglu. Með vísan til þessa, aldurs ákærða og að ákærði segist hafa tekið á sínum vanda og snúið lífi sínu til betri vegar, verður honum ekki gerð sérstök refsing í máli þessu.

Ákærði X var 18 ára er hann framdi brot það sem hann er sakfelldur fyrir nú. Samkvæmt sakarvottorði ákærða fékk ákærði ákærufrestun þann 6. desember 2005, skilorðbundið til tveggja ára fyrir þjófnað. Brot það sem ákærði er sakfelldur fyrir nú framdi hann fyrir þann tíma og verður því að ákvarða refsingu samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þar sem um hegningarauka er að ræða. Ákærði lýsti því fyrir dóminum að hann stundaði fulla vinnu og hefði fyrir fjölskyldu að sjá og hefði snúið lífi sínu til betri vegar. Eins og að ofan greinir þá liðu tæp tvö ár frá því að brotin voru framin og rannsókn málsins lauk þar til ákæra var gefin út. Engin skýring hefur verið gefin á þeim drætti. Með hliðsjón af ofansögðu, aldri ákærða og því að um hegningarauka er að ræða, verður ákærða ekki gerð sérstök refsing í máli þessu.

Af hálfu ákæruvaldsins sótti málið Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður. Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærða, Árna Rúnarssyni, er ekki gerð sérstök refsing í máli þessu. Ákærða, X, er ekki gerð sérstök refsing í máli þessu.

Ástríður Grímsdóttir.

Heimildaskrá