Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 22. febrúar 2007.
Mál nr. S-9/2007:
Ákæruvaldið
(Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður)
gegn
Fannari Daða Hreinssyni
svofelldur
d ó m u r :
(enginn)
Útdráttur
Karlmaður dæmdur í 20.000 króna sekt fyrir að láta dæla bensíni á bifreið sína fyrir 2.000 krónur og fara síðan af vettvangi án þess að greiða fyrir.
Mál þetta, sem þingfest var þann 15. febrúar sl. er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 3. janúar 2007 á hendur Fannari Daða Hreinssyni, kt. 000000-0000, Búðarstíg 3, Eyrabakka, „fyrir þjófnað með því að hafa að morgni miðvikudagsins 9. ágúst 2006, við bensínstöð Olís á Arnbergi á Selfossi, fengið bensínafgreiðslumann til að dæla 14,7 lítrum af eldsneyti á bifreiðina YO-542, alls að verðmæti 2.000 kr. og aka síðan á brott án þess að greiða fyrir eldsneytið.
Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“
Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir löglega birtingu ákæru þann 2. febrúar sl. ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærða fjarstöddum. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði framdi brot það sem greinir í ákæru og það er réttilega fært til refsiákvæðis. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.
Samkvæmt sakarvottorði sem liggur frammi í málinu hefur ákærði unnið sér til refsingar fyrir ýmis umferðarlagabrot og brot á lögum um ávana- og fíkniefni. Þau hafa þó ekki áhrif við ákvörðun refsingar í máli þessu. Ákærði hefur samkvæmt gögnum málsins greitt bætur fyrir það tjón sem hann olli.
Refsing ákærða er því ákveðin 20.000 krónur í sekt til ríkissjóðs, sem ákærða ber að greiða innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæta ella fangelsi í tvo daga.
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Fannar Daði Hreinsson, greiði kr. 20.000 í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæti ella fangelsi í tvo daga.
Ástríður Grímsdóttir.