Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-47/2007:

Ár 2007, mánudaginn 12. mars, er á dómþingi Héraðsdóms Suðurlands, sem háð er að Austurvegi 4, Selfossi, kveðinn upp í  máli nr. S-047/2007:

(Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður)

gegn

Kristni D. Guðmundssyni

svofelldur:

d ó m u r :

(Þormóður Skorri Steingrímsson hdl)

Karlmaður ákærður fyrir líkamsárás. Var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi skilorðsbundið í tvö ár og til að greiða allan sakarkostnað. Rúm tvö ár liðu frá því að brotið var framið og þar til ákæra var gefin út.

Mál þetta, sem þingfest var þann 8. mars sl. og dómtekið sama dag, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, 1. febrúar 2007 á hendur Kristni D. Guðmundssyni, kt. 000000-0000, Laufhaga 6, Selfossi, „fyrir líkamsárásir með því að hafa að kvöldi sunnudagsins 2. janúar 2005, í íbúð sinni að Álftarima 1, Selfossi, veist harkalega að Þórunni Lilju Vilbergsdóttur, kt. 000000-0000 og slegið hana a.m.k. tvisvar sinnum í andlitið, með þeim afleiðingum að Þórunn nefbrotnaði, hlaut mikla bólgu og mar yfir hægra auga auk brots á augntóft hægra megin, tognun á litla fingri hægri handar, mar og skrámur á báðum hnjám, heilahristing og minnisleysi. Ákæruvaldið telur brot ákærða varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 11. gr. laga nr. 20/1981 og þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“

Ákærði mætti við þingfestingu málsins þann 8. mars sl. og viðurkenndi sök greiðlega. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 1. mgr. 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði framdi brot það sem greinir í ákæru og það réttilega fært til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.

Samkvæmt sakarvottorði sem liggur frammi í málinu gekkst ákærði undir viðurlagaákvörðun þann 28. apríl 2004 og var gert að greiða 270.000 króna sekt fyrir ölvunarakstur og sviptur ökurétti í átján mánuði. Af gögnum málsins má sjá að árás ákærða var að öllu tilefnislaus og ófyrirleitin. Brot ákærða var framið 4. janúar 2005 og er ekki í gögnum málsins að sjá neina skýringu á þeim drætti sem hefur orðið á málinu fram að útgáfu ákæru. Með vísan til þess sem að ofan greinir þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í tvo mánuði en fresta skal fullnustu refsingar og skal hún niður falla að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms að telja.

Samkvæmt 165. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 ber að dæma ákærða til að greiða allan sakarkostnað sem er samkvæmt yfirliti 46.546 krónur og þóknun skipaðs verjanda hans, Þormóðs Skorra Steingrímssonar héraðsdómslögmanns 74.700 krónur auk aksturskostnaðar 8.160 krónur. Hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskatts.

Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður sótti mál þetta.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð

Ákærði, Kristinn D. Guðmundsson, sæti fangelsi í tvo mánuði en fresta skal fullnustu refsingar og hún niður falla að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms að telja.

Ákærði greiði allan sakarkostnað samtals 129.406 krónur, þar með talin þóknun skipaðs verjanda hans, Þormóðs Skorra Steingrímssonar héraðsdómslögmanns 82.860 krónur.

Ástríður Grímsdóttir.

Heimildaskrá