Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-428/2007:

Ákæruvaldið

(Gunnar Örn Jónsson ftr)

gegn

Ragnari Jóhanni Lárussyni

svofelldur

d ó m u r :

(Unnar Steinn Bjarndal hdl)

Ákært fyrir likamsárás. Sakfellt.

Mál þetta, sem þingfest var þann 22. nóvember sl. og dómtekið sama dag, var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 22. október 2007, á hendur Ragnari Jóhanni Lárussyni, kt. 000000-0000, Suðurgötu 6, Sandgerði, „fyrir líkamsárás með því að hafa, aðfaranótt laugardagsins 28. apríl 2007, á dansgólfi skemmtistaðarins Pakkhússins á Selfossi, slegið Björn Erik Walter Nygaards Kers, kt. 000000-0000, hnefahögg í andlitið, sem lenti á hægra kinnbeini og nefi, með þeim afleiðingum að Björn Erik hlaut mikið glóðarauga hægra megin og mar niður á hægra kinnbein, bólgur í hægri tyggingarvöðvum og mikil eymsl í nefhrygg og vöðvum í hálsi.

Telst brot þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19,1940, sbr. 10. gr. laga nr. 20,1981.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.

Christiane L. Bahner hdl. gerir, f.h. Björns Eriks, kröfu um að ákærða verði gert að greiða kr. 682.792,- í skaðabætur.“

Ákærði mætti við þingfestingu málsins og játaði sök greiðlega. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 1. mgr. 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála eftir að sækjandi og verjandi ákærða höfðu tjáð sig um lagaákvæði og refsiviðurlög. Upplýsti ákærði að tilefni árásarinnar hafi verið áreiti frá brotaþola. Mótmælti ákærði bótakröfunni.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði framdi brot það sem greinir í ákæru og það er réttilega fært til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.

Samkvæmt sakavottorði, sem liggur frammi í málinu, hefur ákærða ekki verið gerð refsing áður. Með vísan til hreins sakaferils ákærða og skýlausrar játningar þykir refsing hæfilega ákveðin 200.000 króna sekt til ríkissjóðs sem ákærða ber að greiða innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms að telja en sæta ella fangelsi í fjórtán daga.

Af hálfu Björns Eriks hefur verið gerð bótakrafa að fjárhæð 682.792 krónur, sem sundurliðast í miskabætur samkvæmt 26. gr. skaðabótalaga, 600.000 krónur, og málskostnað lögmanns við að halda uppi bótakröfunni ásamt virðisaukaskatti, 82.792 krónur. Krafan var birt ákærða við þingfestingu málsins og ekki hefur verið gerð krafa um vexti. Ákærði mótmælti bótakröfunni sem allt of hárri og vísaði þar til afleiðinganna.

Ákærði hefur verið sakfelldur fyrir líkamsárás og á brotaþoli rétt á miskabótum úr hendi ákærða á grundvelli 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga. Þykja bætur til handa brotaþola hæfilega ákveðnar 60.000 krónur. Þá verður ákærði dæmdur til að greiða kostnað lögmanns brotaþola við að halda fram bótakröfunni, 80.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, eða samtals 140.000 krónur.

Með vísan til 1. mgr. 165. gr. laga nr. 19/1991 greiði ákærði sakarkostnað samkvæmt yfirliti 18.750 krónur, sem er vegna læknisvottorðs, og þóknun skipaðs verjanda ákærða, Unnars Steins Bjarndals héraðsdómslögmanns, 87.150 krónur, auk ferðakostnaðar, 8.580 krónur. Hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskatts.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Ragnar Jóhann Lárusson, greiði 200.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa að telja en sæti ella fangelsi í fjórtán daga.

Ákærði greiði Birni Erik Walter Nygaards Kers 140.000 krónur í skaðabætur.

Ákærði greiði allan sakarkostnað, 114.480 krónur, þar með talin þóknun skipaðs verjanda ákærða, Unnars Steins Bjarndals, 87.150 krónur, auk ferðakostnaðar, 8.580 krónur. Hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskatts.

Ástríður Grímsdóttir.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 1. mgr. 217. gr.
Lög nr. 20/1981 10. gr.
Lög nr. 19/1991 Lög um meðferð opinberra mála 1. mgr. 125. gr.1. mgr. 165. gr.
Lög nr. 50/1993 Skaðabótalög 26. gr.1. mgr. 26. gr.