Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-406/2007:

Ákæruvaldið

(Gunnar Örn Jónsson ftr)

gegn

Ásgeiri Inga Ásgeirssyni

svofelldur

d ó m u r :

(enginn)

Ákært fyrir vörslur á 1,58 gr af kókaíni og 44 skammta af LSD í fangaklefa. Ákærði dæmdur til greiðslu 450.000 króna sektar og upptöku á fíkniefnum.

Mál þetta, sem þingfest var 18. október sl. og dómtekið sama dag, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 7. september 2007, á hendur Ásgeiri Inga Ásgeirssyni, kt. 000000-0000, Lýsubergi 11, Þorlákshöfn, til dvalar að Litla- Hrauni, Eyrarbakka, „fyrir fíkniefnabrot með því að hafa, að morgni sunnudagsins 20. maí 2007, haft í vörslu sinni 1,58 gr af kókaíni og 44 skammta af LSD í klefa númer 236 í fangelsinu að Litla-Hrauni, Eyrarbakka, en ákærði framvísaði fíkniefnunum við klefaleit umrætt sinn.

Telst brot ákærða varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, 75/1982, 13,1985, 68,2001 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848,2002.

Þess er krafist, að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á framangreindum fíkniefnum (efnaskrá nr. 11684) samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“

Ákærði mætti hvorki við þingfestingu málsins, þrátt fyrir löglega birta ákæru þann 10. október 2007 ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærða fjarstöddum, né boðaði forföll. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði framdi brot þau sem greinir í ákæru og eru þau réttilega fært til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt sakarvottorði sem liggur frammi í málinu hlaut ákærði síðast sextán ára fangelsisdóm fyrir brot gegn 211. gr. hegningarlaga. Um verulegt magn er að ræða af LSD töflum og er höfð hliðsjón af því við ákvörðun refsingar.

Refsing ákærða er nú ákveðin 450.000 króna sekt til ríkissjóðs, sem ákærða ber að greiða innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæta ella fangelsi í tuttugu og sex daga.

Ákærði sæti upptöku á þeim fíkniefnum sem greinir í ákæru samkvæmt efnaskrá 11684.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Ásgeir Ingi Ásgeirsson, greiði 450.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæti ella fangelsi í tuttugu og sex daga.

Ákærði sæti upptöku á 1,58 grömmum af kókaíni og 44 skömmtum af LSD.

Ástríður Grímsdóttir.

Heimildaskrá