Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 19. október 2007.
Mál nr. S-404/2007:
Ákæruvaldið
(Gunnar Örn Jónsson ftr)
gegn
Björgvini Gíslasyni
svofelldur
d ó m u r :
(enginn)
Útdráttur
Ákært fyrir tæktun á 5 kannabisjurtum og vörslur á 0,74 gr af amfetamíni og 0,24 gr af kannabis. Ákærði dæmdur til greiðslu 120.000 króna sektar og að sæta upptöku á efnunum.
Mál þetta, sem þingfest var í dag og dómtekið sama dag, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 7. september 2007, á hendur Björgvini Gíslasyni, kt. 000000-0000, Hvermörk 16, 810 Hveragerði, „fyrir fíkniefnabrot með því að hafa, í maí 2007, staðið að ræktun og haft í vörslu sinni 5 kannabisjurtir (cannabis sativa) sem samtals vógu 4,38 gr og lögregla fann við húsleit á heimili ákærða síðdegis 26. maí 2007 og fyrir að hafa umrætt sinn haft í vörslu sinni 0,74 gr af amfetamíni sem ákærði framvísaði til lögreglu og 0,24 gr af kannabis sem lögregla fann í eldhússkáp við umrædda húsleit Telst brot ákærða varða við 2. gr., sbr. 4., 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65,1974, sbr. lög nr. 60,1980, sbr. 9. gr. laga nr. 75,1982, sbr. lög nr. 13,1985, sbr. lög nr. 68,2001 og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233,2001, sbr. reglugerð nr. 848,2002.
Þess er krafist, að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á framangreindum fíkniefnum (efnaskrá nr. 11791 og 11798) og áhöldum til ræktunar kannabisplantna, sem hald var lagt á samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65,1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233,2001.“
Ákærði mætti hvorki við þingfestingu málsins, þrátt fyrir löglega birta ákæru þann 13. október 2007 ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærða fjarstöddum, né boðaði forföll. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði framdi brot þau sem greinir í ákæru og eru þau réttilega fært til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Brot þau, sem ákærða hefur áður verið gerð refsing fyrir, samkvæmt fyrirliggjandi sakarvottorði, hafa ekki áhrif nú við ákvörðun refsingar.
Refsing ákærða er ákveðin 120.000 króna sekt til ríkissjóðs, sem ákærða ber að greiða innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæta ella fangelsi í tíu daga.
Ákærði sæti upptöku á þeim fíkniefnum sem greinir í ákæru samkvæmt efnaskrá 11791 og 11798. Ákærði sæti einnig upptöku á þeim áhöldum sem greinir í munaskrá 56714, sem eru þrír gróðurhúsalampar, átta ljósaperur og rakatæki.
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Björgvin Gíslason, greiði 120.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæti ella fangelsi í tíu daga.
Ákærði sæti upptöku á 5 kannabisjurtum, 0,74 grömmum af amfetamíni, 0,24 grömmum af kannabis, átta ljósaperum, þremur gróðurhúsalömpum og rakatæki.
Ástríður Grímsdóttir.