Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 19. september 2007.
Mál nr. S-285/2007:
Ákæruvaldið
(Karl Gauti Hjaltason sýslumaður)
gegn
Sigurði Friðhólm Gylfasyni og
Aldísi Erlingsdóttur
svofelldur
d ó m u r :
(sjálfur)
Útdráttur
Ákærðu sakfelld fyrir vörslur fíkniefna og annar ákærði auk þess fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna.
Mál þetta, sem þingfest var 12. september sl. og dómtekið sama dag, var höfðað með ákæru lögreglustjórans í Vestmannaeyjum, dagsettri 17. júlí 2007, á hendur Sigurði Friðhólm Gylfasyni, kennitala 000000-0000, Hásteinsvegi 9, Vestmannaeyjum, og Aldísi Erlingsdóttur, kennitala 000000-0000, Foldahrauni 42 c, Vestmannaeyjum,
I.
„fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni ákærða Sigurði með því að hafa um hádegi laugardaginn 14. apríl 2007 haft í vörslum sínum 10,62 grömm af amfetamíni, 2,93 grömm af hassi, 0,94 grömm af maríhúana og 4 skammta af LSD er ákærði faldi í kaffipoka með aðstoð ákærðu Aldísar og þau pökkuðu inn ásamt harðfiski og sælgæti, óku saman á Reykjavíkurflugvöll og sendu pakkann með flugvél Flugfélags Íslands frá Reykjavík til Vestmannaeyja stílaðan á frænku Aldísar, en lögreglan lagði hald á pakkann þegar ákærða Aldís hafði sótt pakkann og var stödd í leigubifreið skömmu fyrir miðnætti á Hraunvegi í Vestmannaeyjum en Aldís er ákærð fyrir hlutdeild í brotum ákærða Sigurðar.
II.
fyrir brot á umferðarlögum ákærða Sigurði með því að hafa skömmu eftir miðnætti sunnudaginn 15. apríl 2007 ekið bifreiðinni KF 379 suður Hraunveg og vestur Foldahraun í Vestmannaeyjum, óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega, þar sem hann var undir áhrifum amfetamíns og MDMA (amfetamín í blóði ákærða mældist 265 ng/ml og MDMA 90 ng/ml). Í Foldahrauni stöðvaði ákærði bifreiðina, þar sem hann hljóp út úr bifreiðinni og inn í íbúð að Foldahrauni 42 c þar sem hann var handtekinn.
Telst brot ákærða Sigurðar samkvæmt ákærulið I varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65 frá 1974 með síðari breytingum og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233 frá 2001, sbr. reglugerð nr. 490 frá 2001 og brot ákærðu Aldísar við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65 frá 1974 með síðari breytingum og 2. gr. sbr. 14. gr. ofangreindrar reglugerðar með breytingum allt sbr. 22. gr. almennra hegningarlaga nr. 19 frá 1940.
Telst brot ákærða Sigurðar samkvæmt ákærulið II varða við 1. mgr. sbr. 2. mgr. 45. gr. a. umferðarlaga nr. 50 frá 1987 sbr. 5. gr. laga nr. 66 frá 2006, sbr. 1. mgr. 100. gr. áðurnefndra umferðarlaga.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar og ákærði Sigurður til að sæta upptöku á 10,62 grömmum af amfetamíni, 2,93 grömmum af hassi, 0,94 grömmum af maríhúana og 4 skammta LSD sem lögreglan lagði hald á við rannsókn málsins hinn 14. apríl 2007 samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, frá 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233 frá 2001.
Þá er þess krafist að ákærði Sigurður verði dæmdur til sviptingar ökuréttar samkvæmt 4. mgr. 102. gr. nefndra umferðarlaga.“
Ákærðu mættu við þingfestingu málsins og játuðu brot sín skýlaust. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 1. mgr. 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála eftir að sækjanda og ákærðu, sem óskuðu ekki eftir verjanda, hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaákvæði og ákvörðun viðurlaga.
Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærðu frömdu brot þau sem greinir í ákæru og þau eru réttilega færð til refsiákvæða. Ákærðu hafa með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.
Samkvæmt sakavottorði ákærða Sigurðar gerði hann sátt þann 22. desember 2004 vegna fíkniefnalagabrota og var gert að greiða 34.000 króna sekt til ríkissjóðs og þann sama dag gekkst hann einnig undir sátt vegna fíkniefnalagabrota og var gert að greiða 119.500 krónur í sekt til ríkissjóðs. Er ákærða nú gerð refsing í þriðja sinn fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni.
Samkvæmt matsgerð sem liggur frammi í málinu frá Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði varðandi ákærulið II, mældist í blóði ákærða Sigurðar amfetamín 265 ng/ml og MDMA 90 ng/ml. Þá kemur fram í matsgerðinni að styrkur amfetamíns í blóði hafi verið töluvert hærri en búast mætti við þegar það er notað til lækninga. Í 2. mgr. 45. gr. a. umferðarlaga segir að mælist ávana- og fíkniefni skv. 1. mgr. í blóði eða þvagi ökumanns teljist hann vera undir áhrifum ávana- og fíkniefna og óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega. Ákærði hefur því unnið sér til refsingar og verður sakfelldur fyrir þá háttsemi sem lýst er í ákæru.
Með vísan til þessa skal ákærði sæta fangelsi í tvo mánuði en rétt þykir að skilorðsbinda refsinguna eins og í dómsorði segir. Ákærði skal sviptur ökurétti í átta mánuði frá birtingu dóms að telja. Þá skal ákærða gert að greiða 80.000 króna sekt til ríkissjóðs en sæta ella fangelsi í sex daga. Ákærða Sigurði skal einnig gert að greiða allan sakarkostnað sem er samkvæmt yfirliti 98.740 krónur.
Þá skal ákærði Sigurður sæta upptöku á 10,62 grömmum af amfetamíni, 2,93 grömmum af hassi, 0,94 grömmum af maríhúana og 4 skömmtum af LSD.
Samkvæmt sakavottorði ákærðu Aldísar var hún dæmd í þriggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára, með dómi Héraðsdóms Suðurlands þann 20. mars 2007 fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Önnur brot ákærðu hafa ekki áhrif við ákvörðun refsingar nú. Ofangreindur dómur var birtur ákærðu þann 26. mars sl. og áhrif skilorðsrofa brýnd fyrir henni. Þrátt fyrir það er ákærða viðriðin fíkniefnabrot þann 14. apríl sl. eða rúmlega hálfum mánuði síðar. Ber að ákvarða ákærðu refsingu nú samkvæmt 60. gr., sbr. 77. gr., almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þykir refsing ákærðu nú hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði en rétt þykir að skilorðsbinda refsinguna eins og í dómsorði greinir.
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Sigurður Friðhólm Gylfason, sæti fangelsi í tvo mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum þremur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.
Ákærði skal sviptur ökurétti í átta mánuði frá birtingu dóms að telja. Þá skal ákærða gert að greiða 80.000 króna sekt til ríkissjóðs en sæta ella fangelsi í sex daga.
Ákærði greiði allan sakarkostnað, 98.740 krónur.
Ákærði Sigurður skal sæta upptöku á 10,62 grömmum af amfetamíni, 2,93 grömmum af hassi, 0,94 grömmum af maríhúana og 4 skömmtum af LSD.
Ákærða, Aldís Erlingsdóttir, sæti fangelsi í fjóra mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum þremur árum haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.
Ástríður Grímsdóttir.