Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 21. júní 2007.
Mál nr. S-245/2007:
Ákæruvaldið
(Gunnar Örn Jónsson ftr)
gegn
Svani Aðalsteinssyni
svofelldur
d ó m u r :
(enginn)
Útdráttur
Ákært fyrir nytjastuld. Ákærði sakfelldur og dæmdur til greiðslu 60.000 króna sektar.
Mál þetta, sem þingfest var í dag og dómtekið sama dag, var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 23. maí 2007, á hendur Svani Aðalsteinssyni, kt. 000000-0000, Vesturbergi 67, Reykjavík, en til dvalar að Arnarhóli, Gaulverjabæjarhreppi, ,,fyrir nytjastuld með því að hafa, síðdegis fimmtudaginn 8. febrúar 2007 heimildarlaust tekið bifreiðina KK-564 þar sem hún stóð á bifreiðaplani við Þorlákshafnarveg og hagnýta sér hana til aksturs norður Þorlákshafnarveg og vestur Þrengslaveg áleiðis að Litlu Kaffistofunni í Svínahrauni, þaðan til baka austur Suðurlandsveg í Hveragerði, þaðan austur Suðurlandsveg að Hellu, síðan til baka að Landvegamótum í Holtum, þaðan upp Landveg að Leirubakka í Landsveit og síðan til baka aftur að Arnarhóli í Flóahreppi, en ákærði lagði bifreiðinni á afleggjara þar skammt frá.
Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19,1940, sbr. lög nr. 20,1956.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“
Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir löglega birtingu ákæru þann 12. júní sl. ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærða fjarstöddum. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði framdi brot það sem greinir í ákæru og er það réttilega fært til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt sakavottorði sem liggur fyrir í málinu var ákærði dæmdur þann 26. júní 2006 fyrir brot gegn 1. mgr. 218. gr. hegningarlaga en ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Ákærði rauf skilorð þess dóms með broti því sem hann hefur verið sakfelldur fyrir nú. Ber því að dæma málið samkvæmt 77. gr. sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Samkvæmt 60. gr. hegningarlaga er dómstól heimilt að dæma refsingu fyrir nýja brotið sér í lagi, en láta skilorðsdóm haldast, og kemur slíkt helst til greina, ef nýja brotið hefur ekki verið framið af ásetningi eða varðar aðeins sektum. Með hliðsjón af sakarferli ákærða og ungs aldurs hans þykir rétt að láta skilorð dómsins frá 26. júní 2006 halda sér en dæma ákærða til greiðslu sektar í þessu máli.
Með vísan til þessa þykir refsing ákærða hæfilega ákvörðuð 60.000 króna sekt til ríkissjóðs, sem ákærði greiði innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa en sæti ella fangelsi í sex daga.
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Svanur Aðalsteinsson, greiði 60.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dóms að telja en sæti ella fangelsi í sex daga.
Ástríður Grímsdóttir.