Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 3. maí 2007.
Mál nr. S-232/2007:
Ákæruvaldið
(Gunnar Örn Jónsson ftr)
gegn
Lukasz Piotr Ostrowski
svofelldur
d ó m u r :
(enginn)
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað á pakka sem kom með rútu til Selfoss.
Mál þetta, sem þingfest var þann 26. apríl sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 25. apríl 2007, á hendur Lukasz Piotr Ostrowski, fæddum 17. febrúar 1985, pólskum ríkisborgara án dvalarstaðar á Íslandi, „fyrir þjófnað með því að hafa að kvöldi 24. apríl 2007 í Snælandsvídeo á Selfossi, stolið pakka merktum Þóreyju Eyþórsdótt[u]r kt. 000000-0000, er innihélt 1 brúsa af Magix color sprey fyrir leður og inneignarnótu að fjárhæð kr. 3.990.-, en umræddur pakki hafði verið sendur á Selfoss með áætlunarbifreið sem ákærði var einnig sjálfur farþegi með.
Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en til vara við 245. gr. sömu laga. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“
Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir löglega birtingu ákæru þann 25. apríl 2007 sl. að verjanda hans viðstöddum, ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærða fjarstöddum. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði framdi brot það sem greinir í ákæru og það er réttilega fært til 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.
Samkvæmt sakavottorði sem liggur frammi í málinu hefur ákærði ekki unnið sér til refsingar hér á landi áður.
Refsing ákærða er því ákveðin 30.000 krónur í sekt til ríkissjóðs, sem ákærða ber að greiða innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæta ella fangelsi í fjóra daga.
Samkvæmt 165. gr. sbr. 164. gr. laga um meðferð opinberra mála ber að dæma ákærða til að greiða allan sakarkostnað sem hlotist hefur af máli þessu sem er þóknun verjanda hans á rannsóknarstigi, Torfa Ragnars Sigurðssonar héraðsdómslögmanns, 79.680 krónur.
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Lukasz Piotr Ostrowski, greiði kr. 30.000 í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæti ella fangelsi í fjóra daga.
Ákærði greiði allan sakarkostnað sem er þóknun skipaðs verjanda hans á rannsóknarstigi, Torfa Ragnars Sigurðssonar héraðsdómslögmanns, 79.680 krónur.
Ástríður Grímsdóttir.