Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-196/2007:

Ákæruvaldið

(Gunnar Örn Jónsson ftr)

gegn

Stefan Valbirni Pedersen

svofelldur

d ó m u r :

(sjálfur)

Ákært fyrir að ógna og hóta tveimur karlmönnum lífláti og líkamsmeiðingum með hnífi. Ákærði játaði brot sitt greiðlega. Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára.

Mál þetta, sem þingfest var 3. maí sl. og dómtekið 24. maí sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 21. apríl 2007, á hendur Stefan Valbirni Pedersen, kt. 000000-0000, Arahólum 2, Reykjavík, „fyrir hótanir, með því að hafa skömmu fyrir miðnætti laugardagsins 26. nóvember 2006 í veitingastaðnum Ölfushöllinni, Sveitarfélaginu Ölfusi, ítrekað ógnað og hótað Eymundi Gunnarssyni, kt. 000000-0000 og Ásgeiri Hallgrími Ásgeirssyni, kt. 000000-0000 líkamsmeiðingum og lífláti og tekið þá tökum og ógnað með hnífi til að leggja áherslu á hótanir sínar. Var þessi háttsemi ákærða fallin til að vekja hjá Eymundi og Ásgeiri ótta um líf sitt og velferð.

Telst brot ákærða varða við 233. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 82/1998.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“

Ákærði sótti þing þann 24. maí sl. og játaði sök.

Farið var með málið samkvæmt ákvæðum 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Játning ákærða er í samræmi við önnur gögn málsins og verður hann sakfelldur fyrir brot sitt en það er í ákæru rétt fært til refsiákvæðis. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.

Samkvæmt sakavottorði ákærða gekkst hann á árinu 2006 tvisvar sinnum undir sáttir, í fyrra skiptið fyrir fíkniefnalagabrot og í seinna skiptið fyrir umferðarlagabrot. Þessi brot ákærða hafa þó ekki áhrif á ákvörðun refsingar í máli þessu.

Við ákvörðun refsingar verður tekið tillit til þess að ákærði réðst að tilefnislausu að tveimur mönnum, hafði uppi við þá hótanir um líkamsmeiðingar og líflát og ógnaði þeim með hnífi, með þeim hætti að þeir höfðu ástæðu til að óttast um líf sitt og velferð, sbr. 1. og 3. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Með hliðsjón af framangreindu, því að ákærði hefur farið í áfengismeðferð og reynt að ráða bót á áfengisvandamáli sínu og af dómaframkvæmd þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Stefan Valbjörn Pedersen, sæti fangelsi í fjóra mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ástríður Grímsdóttir.

Heimildaskrá