Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-195/2007:

Ákæruvaldið

(Gunnar Örn Jónsson ftr)

gegn

Reyni Gannt Joensen

svofelldur

d ó m u r :

(enginn)

Sakfellt fyrir vörslur á hassi og sveppum. Dæmdur til að greiða 60.000 króna sekt og sæta upptöku á fíkniefnum.

Mál þetta, sem þingfest var þann 10. maí sl., og dómtekið sama dag, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 21. apríl 2007, á hendur Reyni Gannt Joensen, kt. 000000-0000, Bugðugerði 5a, Skeiða- og Gnúpverjahreppi, „fyrir fíkniefnabrot með því að hafa, sunnudaginn 26. nóvember 2006 haft í vörslu sinni a. 3,18 g af hassi b. 0,94 g af maríhuana c. 2,31 g af sveppum sem innihéldu ávana- og fíkniefnið psilocybin en ofangreind ávana- og fíkniefni afhenti ákærði lögreglu við húsleit á heimili sínu umrætt sinn.

Telst brot ákærða varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, 75/1982, 13/1985, 68/2001 og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001 með síðari breytingum.

Þess er krafist, að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á framangreindum fíkniefnum (efnaskrá nr. 10895) samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“

Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins, þrátt fyrir löglega birta ákæru þann 8. maí 2007 ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærða fjarstöddum, né boðaði lögleg forföll. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði framdi brot það sem greinir í ákæru og er það réttilega fært til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt sakavottorði ákærða hefur honum einu sinni á árinu 2006 verið gerð refsing fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni og var gert að greiða 31.000 króna sekt til ríkissjóðs.

Refsing ákærða er nú ákveðin 60.000 króna sekt til ríkissjóðs, sem ákærða ber að greiða innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæta ella fangelsi í sex daga.

Ákærði sæti upptöku á 3,18 grömmum af hassi, 0,91 grammi af maríhuana og 2,31 grammi af sveppum samkvæmt efnaskrá lögreglu nr. 10895.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Reynir Gannt Joensen, greiði 60.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæti ella fangelsi í sex daga.

Ákærði sæti upptöku á 3,18 grömmum af hassi, 0,91 grammi af maríhuana og 2,31 grammi af sveppum samkvæmt efnaskrá lögreglu nr. 10895.

Ástríður Grímsdóttir.

Heimildaskrá