Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-190/2007:

Ákæruvaldið

(Gunnar Örn Jónsson lögmaður)

gegn

Ásgeiri Hrafni Símonarsyni

svofelldur

d ó m u r :

(enginn)

Ákærði sakfelldur fyrir eignaspjöll og til að greiða skaðabætur.

Mál þetta, sem þingfest var 10. maí sl. og dómtekið samdægurs, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 21. apríl 2007, á hendur Ásgeiri Hrafni Símonarsyni, kt. 000000-0000, Fossheiði 56, Selfossi, „fyrir eignaspjöll með því að hafa, aðfaranótt föstudagsins 22. desember 2006, í anddyri lögreglustöðvarinnar á Selfossi, ráðist með spörkum á hurð að blóðtökuherbergi, þannig að hurðarkarmur skemmdist.

Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.

Í málinu gerir Lögreglan í Árnessýslu kt. 000000-0000 f.h. Fasteigna ríkissjóðs kt. 000000-0000 kröfu um að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 93.248 vegna tjónsins, auk vaxta samkvæmt 8. gr. sbr. II. kafla vaxtalaga nr. 38/2001 frá 13. mars 2007 en dráttarvaxta frá 13. apríl 2007 til greiðsludags.“

Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir löglega birtingu ákæru þann 2. maí sl. ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærða fjarstöddum. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði framdi brot það sem greinir í ákæru og er það réttilega fært til refsiákvæða. Fyrir liggur í gögnum málsins refsikrafa Lögreglunnar í Árnessýslu, kt. 000000-0000, f.h. Fasteigna ríkissjóðs, kt. 000000-0000, sbr. 4. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.

Samkvæmt sakavottorði sem liggur frammi í málinu hefur ákærða tvisvar sinnum verið gerð refsing fyrir umferðarlagabrot. Þessi brot hafa þó ekki áhrif á ákvörðun refsingar í máli þessu.

Refsing ákærða er ákveðin 46.000 krónur í sekt til ríkissjóðs, sem ákærða ber að greiða innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæta ella fangelsi í fjóra daga.

Bótakrafa Lögreglunnar í Árnessýslu er studd reikningi að fjárhæð 93.248 krónur sem ber með sér að vera vegna viðgerðar á brotnum hurðarkarmi innandyra. Ákærði samþykkti bótakröfuna fyrir lögreglu þegar honum var kynnt hún þann 15. febrúar 2007. Að þessu athuguðu þykir bótakrafan vera nægilega studd gögnum og verður ákærði því dæmdur til greiðslu hennar.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Ásgeir Hrafn Símonarson, greiði 46.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæti ella fangelsi í fjóra daga.

Ákærði greiði Lögreglunni í Árnessýslu f.h. Fasteigna ríkissjóðs 93.248 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. sbr. II. kafla vaxtalaga nr. 38/2001 frá 15. mars 2007 en með dráttarvöxtum frá 15. apríl 2007 til greiðsludags.

Ástríður Grímsdóttir.

Heimildaskrá