Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-154/2007:

Ákæruvaldið

(Gunnar Örn Jónsson lögmaður)

gegn

Andreu Ey Elísdóttur

svofelldur

d ó m u r :

(enginn)

Ákært fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna og vopnalagabrot. Ákærða dæmd til greiðslu 180.000 króna sektar, svipt ökurétti í eitt og hálft ár, til að sæta upptöku á gúmmíkylfum og til greiðslu sakarkostnaðar. Um hegningarauka var að ræða.

Mál þetta, sem þingfest var 14. júní sl. og dómtekið samdægurs, er höfðað með tveimur ákærum lögreglustjórans á Selfossi, annarri dagsettri þann 25. mars 2007 og þeirri síðari dagsettri 21. apríl 2007, á hendur Andreu Ey Elísdóttur, kt. 000000- 0000, óstaðsettri í hús í Reykjavík, þeirri fyrri

I

„fyrir umferðarlagabrot- og vopnalagabrot með því að hafa, snemma morguns sunnudaginn 3. desember 2006 ekið bifreiðinni SZ-066 vestur Suðurlandsveg við Hveragerði, óhæf til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa amfetamíns, metýlfenídats og tetrahýdrókannabínólsýru. Í blóði ákærðu mældist amfetamín 160 ng/ml auk þess sem metýlfenídat og tetrahýdrókannabínólsýra fannst í þvagi ákærðu.

Telst brot ákærðu varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. umferðarlaga nr. 50,1987 sbr. 5. gr. laga nr. 66,2006, sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga.

II.

með því að hafa á sömu stund og stað og frá greinir í ákærulið I. haft í vörslu sinni í fyrrgreindri bifreið, tvær gúmmíkylfur samfestar með keðju lengd 310 mm hvor, þykkt 25 til 29 mm, sem lögregla fann við leit í bifreiðinni.

Telst brot ákærðu varða við c. lið 2. mgr. 30. gr. sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16,1998.

Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar, til að sæta sviptingu ökuréttar samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50,1987, sbr. lög nr. 44,1993, lög nr. 57,1997, lög nr. 23,1998, lög nr. 132,2003, lög nr. 84,2004 og lög nr. 66,2006 og til að sæta upptöku á framangreindu höggvopni samkvæmt 1. mgr. 37. gr. vopnalaga nr. 16,1998.“

Seinni ákæran er fyrir „umferðarlagabrot með því að hafa, síðdegis sunnudaginn 4. mars 2007 ekið bifreiðinni KK-468 norður Eyrarbakkaveg á vegarkafla við Tjarnarbyggð í Sveitarfélaginu Árborg, óhæf til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa amfetamíns, metýlfenídats og tetrahýdrókannabínólsýru.

Telst brot ákærðu varða við 1. sbr. 2. mgr. 45. gr. a. umferðarlaga nr. 50,1987 sbr. 5. gr. laga nr. 66,2006, sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga.

Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar, til að sæta sviptingu ökuréttar samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50,1987, sbr. lög nr. 44,1993, lög nr. 57,1997, lög nr. 23,1998, lög nr. 132,2003, lög nr. 84,2004 og lög nr. 66,2006.“

Síðari ákæran fékk málsnúmerið S-184/2007 en var sameinað fyrra málinu við fyrirtöku þann 24. maí sl. Ákærða mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir löglega birtingu ákæru í Lögbirtingablaði ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærðu fjarstaddri. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærða framdi brot þau sem greinir í ákærum og eru þau réttilega færð til refsiákvæða. Ákærða hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.

Samkvæmt sakavottorði sem liggur frammi í málinu var ákærða dæmd til greiðslu 12.000 króna sektar þann 9. febrúar 2000 fyrir hraðakstur. Þann 20. mars 2006 gekkst ákærða undir 50.000 króna sekt fyrir brot gegn 1. sbr. 2. mgr. 45. gr. umferðarlaga og var auk þess svipt ökurétti í tvo mánuði. Þann 31. mars 2006 var ákærða dæmd til greiðslu 34.000 króna sektar fyrir fíkniefnalagabrot. Þann 5. júlí 2006 gekkst ákærða undir sátt fyrir fíkniefnalagabrot og þann 27. mars 2007 var ákærða dæmd til greiðslu 270.000 króna sektar og svipt ökurétti í tvö ár fyrir brot gegn 1. sbr. 2. mgr. 45. gr. a umferðarlaga og brot á fíkniefnalöggjöfinni.

Samkvæmt matsgerð frá Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræðum í Háskóla Íslands dags. 21. mars 2007 mældist í blóði ákærðu metýlfenídat, 20 ng/ml en amfetamín eða tetrahýdrókannabínól voru ekki mælanleg í blóði en fannst í þvagi. Þá segir í matsgerðinni að styrkur metýlfenídats í blóði sé innan þeirra marka, sem búast megi við þegar það er notað til lækninga. Þá segir í matsgerð frá sömu stofnun dags. 16. janúar 2007 að í þvagi hafi fundist amfetamín, metýlfenídat og tetrahýdrókannabínólsýra. Í blóði hafi mælst amfetamín 160 ng/ml. Metýlfenídat eða tetrahýdrókannabínól hafi ekki verið í mælanlegu magni í blóðinu.

Þau brot sem ákærða hefur verið sakfelld fyrir nú framdi hún áður en dómur gekk þann 27. mars sl. og er því um hegningarauka að ræða. Ljóst er að við ákvörðun refsingar í því máli hefði niðurstaða í þessu máli haft áhrif og ber því að ákvarða refsingu með vísan til 78. gr. hegningarlaga.

Gerð er krafa um sviptingu ökuréttar og við þingfestingu málsins lagði ákæruvaldið fram gögn um að ákærðu hefði verið birtur dómurinn frá 27. mars sl. þar sem ákærða var dæmd til sviptingar ökuréttar í tvö ár, frá 26. apríl 2007. Fór ákæruvaldið því fram á að svipting ökuréttar í máli þessu væri frá 26. apríl 2009 að telja með vísan til þess að ákærða væri nú þegar svipt ökurétti.

Með vísan til þess sem að ofan segir þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin 180.000 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs, sem ákærðu ber að greiða innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæta ella fangelsi í fjórtán daga.

Ákærða skal svipt ökurétti í eitt og hálft ár frá 26. apríl 2009 að telja.

Ákærða skal sæta upptöku á gúmmíkylfu eins og í ákæru greinir.

Ákærðu skal gert, með vísan til 165. gr. laga um meðferð opinberra mála, að greiða allan sakarkostnað sem er samkvæmt yfirliti um sakarkostnað samtals 292.490 krónur vegna rannsóknar á blóði.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærða, Andrea Ey Elísdóttir, greiði 180.000 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs, sem ákærðu ber að greiða innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæta ella fangelsi í fjórtán daga.

Ákærða skal svipt ökurétti í eitt og hálft ár frá 26. apríl 2009 að telja.

Ákærða sæti upptöku á tveimur gúmmíkylfum, samfestum með keðju að lengd 310 mm hvor og þykkt 25 til 29 mm.

Ákærða greiði allan sakarkostnað, 292.490 krónur.

Ástríður Grímsdóttir.