Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 20. maí 2026.
Mál nr. S-2221/2026:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Karen Lárusdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Arnóri Frey Haraldssyni
(Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Lykilorð
Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Fangelsi. Játningarmál. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 30. apríl 2026, á hendur Arnóri Frey Haraldssyni, kt. […], […], Reykjavík, fyrir umferðalagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 10. september 2025 ekið bifreiðinni […] óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist tetrahýdrókannabínól 2,8 ng/ml) um Vesturlandsveg við Korpúlfsstaðaveg og Barðastaði í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og afsalar sér málsvarnarþóknunar sér til handa.
Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 17. apríl 2026, gekkst ákærði undir greiðslu fésektar og sviptingu ökuréttinda með sátt Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 9. janúar 2023, meðal annars fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þá gekkst ákærði aftur undir greiðslu fésektar og sviptingu ökuréttinda með sátt Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 28. febrúar 2023 fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður því lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í þriðja sinn eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga, gerst sekur um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Undir meðferð málsins játaði ákærði brot sín skýlaust. Horfir það honum til málsbóta, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og dómvenju þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærði sviptur ökurétti ævilangt frá uppkvaðningu dómsins að telja.
Ákærði greiði 132.786 krónur í sakarkostnað.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi.
Rut Hrafns Elvarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Arnór Freyr Haraldsson, sæti fangelsi í 30 daga.
Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá uppkvaðningu dómsins að telja.
Ákærði greiði 132.786 krónur í sakarkostnað.
Rut Hrafns Elvarsdóttir