Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-1816/2026:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Karen Lárusdóttir saksóknarfulltrúi)

gegn

Arturas Mockus

Akstur sviptur ökurétti. Fangelsi. Játningarmál. Umferðarlagabrot.

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 4 mánuði.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 13. apríl 2026, á hendur Arturas Mockus, kt. […], […], Reykjavík, fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, fimmtudaginn 23. október 2025, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Hádegismóa í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa.

Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 10. mars 2026, á ákærði nokkurn sakaferil að baki. Það sem hefur þýðingu við úrlausn máls þessa er að með sátt Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 6. desember 2018 gekkst ákærði undir greiðslu fésektar og sviptingu ökuréttinda fyrir akstur sviptur ökurétti. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 16. júní 2020 var ákærða gert að sæta fangelsi í 90 daga og sæta sviptingu ökuréttinda ævilangt, meðal annars fyrir akstur sviptur ökurétti. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 3. maí 2021 var ákærða gert að sæta fangelsi í 135 daga, meðal annars fyrir akstur sviptur ökurétti. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 11. september 2024 var ákærða gert að sæta fangelsi í 60 daga og áréttuð ævilöng svipting ökuréttar. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 20. nóvember 2024 var ákærða gert að sæta fangelsi í 5 mánuði, fyrir akstur sviptur ökurétti en dómurinn var hegnignarauki að hluta við ofangreindan dóm frá 11. september sama ár. Nú síðast var ákærða með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 26. mars 2025 gert að sæta fangelsi í 6 mánuði, meðal annars fyrir akstur sviptur ökurétti en um var að ræða hegningarauka við ofangreindan dóm frá 20. nóvember 2024.

Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður því lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í sjötta sinn, eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga gerst sekur um akstur sviptur ökurétti.

Undir meðferð málsins játaði ákærði brot sín skýlaust. Horfir það honum til málsbóta, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og dómvenju þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði.

Með vísan til sakaferils ákærða þykir ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna.

Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari.

Rut Hrafns Elvarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Arturas Mockus, sæti fangelsi í fjóra mánuði.

Rut Hrafns Elvarsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 1. mgr. 70. gr.71. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 1. mgr. 58. gr.1. mgr. 95. gr.