Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 20. apríl 2026.
Mál nr. S-1612/2026:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Anton Lapynskyi
Lykilorð
Akstur sviptur ökurétti. Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Fangelsi. Játningarmál. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 26. mars 2026, á hendur Anton Lapynskyi, kt. […], […], Reykjavík, fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 23. október 2025 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist amfetamín 230 ng/ml) um Miðhraun í Garðabæ, við hús nr. […], þar sem lögregla hafði afskipti af ákærða.
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa.
Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 26. mars 2026, var ákærða með sekt lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 21. febrúar 2025 gert að greiða sekt og sæta sviptingu ökuréttar, meðal annars vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Aftur var ákærða gert að greiða sekt með sekt lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 21. júlí 2025 fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur sviptur ökurétti. Þá var ákærða með tveimur sektum lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 19. október 2025 gert að greiða sektir vegna aksturs sviptur ökurétti, en sektir þessar voru hegningarauki við áðurnefnda sekt frá 21. júlí sama ár.
Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður því lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í þriðja sinn, eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, gerst sekur um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og í annað sinn gerst sekur um akstur sviptur ökurétti.
Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem og skýlausri játningu ákærða, þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærði sviptur ökurétti ævilangt frá uppkvaðningu dóms þessa að telja.
Ákærði greiði 144.938 krónur í sakarkostnað.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari.
Sigurbjörg Birta Berndsen aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Anton Lapynskyi, sæti fangelsi í 30 daga.
Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá uppkvaðningu dómsins að telja.
Ákærði greiði 144.938 krónur í sakarkostnað.
Sigurbjörg Birta Berndsen