Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-1610/2026:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Leszek Zygmunt Strzebinski

Akstur sviptur ökurétti. Fangelsi. Umferðarlagabrot.

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 30 daga.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 26. mars 2026, á hendur Leszek Zygmunt Strzebinski, kt. […], […], Reykjavík, fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa mánudaginn 10. nóvember 2025 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Austurbrún í Reykjavík, við hús […].

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll en hafði verið birt ákæra og fyrirkall. Verður málið dæmt samkvæmt heimild í a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins.

Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 26. mars 2026, gekkst ákærði undir greiðslu sektar og sviptingu ökuréttinda með sátt Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 26. september 2023, meðal annars fyrir akstur sviptur ökuréttindum. Nú síðast var ákærða gert að sæta fangelsi í 30 daga með dóm Héraðsdóms Reykjavíkur 15. október 2025 og til að sæta sviptingu ökuréttinda ævilangt, meðal annars fyrir akstur sviptur ökuréttindum. Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður því lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í þriðja sinn eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga, gerst sekur um akstur sviptur ökuréttindum.

Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og dómvenju þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi.

Með vísan til sakaferils ákærða þykir ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna.

Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari.

Rut Hrafns Elvarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Leszek Zygmunt Strzebinski, sæti fangelsi í 30 daga.

Rut Hrafns Elvarsdóttir

Heimildaskrá