Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-1609/2026:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Alfredas Zverevas

Akstur sviptur ökurétti. Fangelsi. Játningarmál. Umferðarlagabrot.

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 90 daga.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 26. mars 2026, á hendur Alfredas Zverevas, kt. […], […], Reykjavík, fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 2. október 2025 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Nýbýlaveg í Kópavogi, við hús n. […].

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa.

Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 26. mars 2026, hefur ákærði ítrekað gerst sekur um akstur sviptur ökurétti. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 8. janúar 2015 var ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi, meðal annars fyrir akstur sviptur ökurétti. Ákærði gekkst undir greiðslu sektar með sátt lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 30. maí 2017 fyrir akstur sviptur ökurétti. Þá var ákærða með dómi Héraðsdóms Norðurlands Vestra 30. júní 2020 gert að sæta fangelsi í 30 daga vegna aksturs sviptur ökurétti. Loks var ákærða með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 16. desember 2020 gert að sæta fangelsi í 75 daga fyrir akstur sviptur ökurétti, en dómur þessi var að hluta til hegningarauki við áðurnefndan dóm Héraðsdóms Norðurlands Vestra frá 30. júní 2020.

Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður því lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í fimmta sinn, eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, gerst sekur um akstur sviptur ökurétti.

Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem og skýlausri játningu ákærða, þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 90 daga fangelsi.

Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari.

Sigurbjörg Birta Berndsen, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Alfredas Zverevas, sæti fangelsi í 90 daga.

Sigurbjörg Birta Berndsen

Heimildaskrá