Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-1608/2026:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Hauki Ármannssyni

Fangelsi. Umferðarlagabrot. Útivist.

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 4 mánuði.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 26. mars 2026, á hendur Hauki Ármannssyni, kt. […], […], Reykjavík, fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa föstudaginn 31. október 2025 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Breiðhöfða í Reykjavík, við Bíldshöfða.

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll en hafði verið birt ákæra og fyrirkall. Verður málið dæmt samkvæmt heimild í a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins.

Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 26. mars 2026, gekkst ákærði undir greiðslu sekta með tveimur sáttum Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 14. febrúar 2020 fyrir akstur sviptur ökuréttindum. Þá gekkst ákærði einnig undir greiðslu sektar með sátt Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 7. janúar 2021 fyrir akstur sviptur ökuréttindum. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 15. júní 2021 var ákærða gert að sæta fangelsi í 90 daga, meðal annars fyrir akstur sviptur ökuréttindum. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 19. apríl 2023 var ákærða gert að sæta fangelsi í 4 mánuði, meðal annars fyrir akstur sviptur ökuréttindum og nú síðast var ákærða með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 5. mars 2025 gert að sæta fangelsi í 6 mánuði, meðal annars fyrir akstur sviptur ökuréttindum. Að öðru leyti hefur sakaferill ákærða ekki þýðingu við úrlausn máls þessa.

Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður því lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í sjötta sinn, eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga gerst sekur um akstur sviptur ökuréttindum.

Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og dómvenju þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði.

Með vísan til sakaferils ákærða þykir ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna.

Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari.

Rut Hrafns Elvarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Haukur Ármannsson, sæti fangelsi í fjóra mánuði.

Rut Hrafns Elvarsdóttir

Heimildaskrá