Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-1228/2026:

Ákæruvaldið

(Silja Rán Arnarsdóttir saksóknarfulltrúi)

gegn

Sigmundi Þóri Jónssyni

(Þorgils Þorgilsson lögmaður)

Barnaníð. Blygðunarsemi. Sérstök skilyrði.

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn blygðunarsemi og vörslur á teiknuðu barnaníðsefni. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 8 mánuði, en fullnustu 5 mánaða frestað skilorðsbundið. Var einnig mælt fyrir um að ákærði sætti sértæku úrræði á skilorðstímanum.

Dómur

  1. Mál þetta, sem dómtekið var 13. apríl 2026, var höfðað með tveimur eftirfarandi ákærum á hendur Sigmundi Þóri Jónssyni, kt. […], […], Reykjavík,

I.

Ákæra Héraðssaksóknara 3. mars 2026 “fyrir kynferðisbrot, með því að hafa að morgni sunnudagsins 10. september 2025, utandyra fyrir framan […] í Reykjavík, berað kynfæri sín og fróað sér og þannig sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi sem var til þess fallið að særa blygðunarsemi þeirra sem urðu vitni að því og var til opinbers hneykslis en A varð vitni að atferli hans.

Telst þetta varða við 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

II.

Ákæra lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 10. mars 2026

„fyrir kynferðisbrot með því að hafa, laugardaginn 8. júlí 2023 og um langt skeið fram til þess dags, á dvalarstað sínum að Njálsgötu 112 í Reykjavík, haft í vörslum sínum teiknað efni, alls 2.060 ljósmyndir, 41 hreyfimynd í GIF skráarformi og 49 myndskeið sem sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt, sem ákærði geymdi á farsíma sínum, Samsung Galaxy J5 sem haldlagður var af lögreglu við húsleit.

Telst háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 210. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Þá er þess krafist með vísan til 1. og 3. tl. 1. mgr. 69. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, að ákærða verði gert að sæta upptöku á framangreindu myndefni, þ.e. 2.060 ljósmyndum, 41 hreyfimynd og 49 myndskeiðum, farsíma af gerðinni Samsung Galaxy J5 og hörðum disk úr borðtölvu ákærða sem ákærði sagði að hefði að geyma myndefni sem sýnir börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt.“

  1. Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá krefst verjandi ákærða hæfilegrar málsvarnarþóknunar sér til handa.
  2. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
  3. Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að hann er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í framangreindum ákærum.
  4. Samkvæmt sakavottorði ákærða var hann með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 12. júní 2020 dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir blygðunarsemisbrot. Með dómi sama dómstóls frá 19. janúar 2023 var ákærði dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslur á barnaklámi, en um var að ræða hegningarauka við fyrrgreindan dóm. Sakaferill hans hefur að öðru leyti ekki þýðingu við úrlausn málsins. Með broti ákærða 8. júlí 2023 rauf hann skilorð dómsins frá 19. janúar 2023. Ber því í samræmi við ákvæði 60. gr. almennra hegningarlaga að taka refsingu þess dóms upp og dæma honum nú refsingu í einu lagi eftir reglum 77. gr. almennra hegningarlaga. Brotið er jafnframt ítrekun á broti því sem hann var þá dæmdur fyrir, en af því leiðir að hækka má refsingu fyrir brotið nú þannig að bætt sé við hana allt að helmingi hennar, sbr. 210. gr. c almennra hegningarlaga.
  5. Við ákvörðun refsingar er litið til greiðrar játningar ákærða sem horfir til mildunar. Ákærði var samvinnufús og afhenti lögreglu að eigin frumkvæði gögn varðandi brot hans 8. júlí 2023. Þrátt fyrir að um sé að ræða teiknaðar myndir og myndskeið ber að líta til þess að markmið refsinga fyrir vörslur á efni af þessu tagi, sem sýnir börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt, er að styrkja vernd barna gegn kynferðislegri misnotkun, m.a. í tengslum við gerð slíks efnis. Er sérstaklega að því vikið í athugasemdum með 210. gr. a almennra hegningarlaga, í frumvarpi því sem varð að lögum nr. 58/2012, að efni af þessu tagi geti verið fallið til þess að hvetja til brota gegn börnum þótt brotið sem slíkt beinist í reynd ekki gegn barni. Þá var hámarksrefsing fyrir brot gegn ákvæðinu hækkuð úr 2 árum í 6 ár með lögum nr. 29/2022.
  6. Þá er við ákvörðun refsingar litið til þess að meðferð málsins frá 8. júlí 2023 hefur dregist óhóflega hjá ákæruvaldinu af ástæðum sem ákærða verður ekki kennt um, en ákæra var ekki gefin út fyrr en 10. mars 2026.
  7. Samkvæmt framansögðu og með vísan til 1., 5., 8. og 9. tl. 1. mgr. 70. gr., 60. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga þykir hæfileg refsing ákærða ákveðin fangelsi í átta mánuði, en með hliðsjón af samvinnuvilja ákærða og vilja til að leita sér aðstoðar þykir rétt að fresta fullnustu fimm mánaða af refsingunni og falli sá hluti refsingarinnar niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.
  8. Ákærði kvaðst ekki hafa verið andlega tilbúinn til að leita sér faglegrar aðstoðar í samræmi við skilyrði í fyrrgreindum dómi frá 19. janúar 2023, en teldi sig tilbúinn til þess nú. Telur dómurinn rétt að binda frestun á fullnustu refsingar ákærða sömu skilyrðum samkvæmt 1. tl. 3. mgr. 57. gr. almennra hegningarlaga, og skal ákærði sæta sérstakri umsjón og meðferð hjá úrræðinu Taktu skrefið eins og ástæða þykir til og ekki sjaldnar en fjórum sinnum á ári. Þá skal ákærði hlíta fyrirmælum umsjónaraðila samkvæmt 2. tl. 3. mgr. 57. gr. sömu laga.
  9. Ákærði skal, með vísan til lagaákvæða í ákæru, sæta upptöku á myndefni og munum sem í ákæru greinir, er lögreglan lagði hald á við rannsókn málsins og nánar greinir í dómsorði.
  10. Með vísan til 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 ber ákærða að greiða málsvarnarþóknun skipaðs verjanda, Þorgils Þorgilssonar lögmanns, sem þykir hæfilega ákveðin eins og nánar greinir í dómsorði að meðtöldum virðisaukaskatti.
  11. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Silja Rán Arnarsdóttir. Hlynur Jónsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Sigmundur Þórir Jónsson, sæti fangelsi í 8 mánuði en fresta skal fullnustu 5 mánaða af refsingunni og falli sá hluti hennar niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. Ákærði skal einnig á skilorðstímanum sæta umsjón og fyrirmælum hjá úrræðinu Taktu skrefið eins og ástæða þykir til og ekki sjaldnar en fjórum sinnum á ári, sbr. 1. og 2. tl. 3. mgr. 57. gr. sömu laga. Ákærði sæti upptöku á 2.060 ljósmyndum, 41 hreyfimynd og 49 myndskeiðum, farsíma af gerðinni Samsung Galaxy J5 og hörðum disk úr borðtölvu ákærða. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Þorgils Þorgilssonar lögmanns, 356.250 krónur.

Heimildaskrá