Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 24. mars 2026.
Mál nr. S-1149/2026:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Kjartani Svani Einarssyni
(Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Lykilorð
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás og dæmdur til tveggja mánaða skilorðsbundins fangelsis.
Dómur
- Mál þetta, sem dómtekið var 17. mars sl., höfðaði lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu með ákæru útgefinni 24. febrúar sl. á hendur Kjartani Svani Einarssyni, kt. […], […] „fyrir líkamsárás með því að hafa, aðfaranótt laugardagsins 17. ágúst 2024, veist með ofbeldi að A, kt. […], innandyra í hjólhýsi við […] í Reykjavík, og kastað henni til, hrint henni á borð, sparkað í hana og slegið hana ítrekað með krepptum hnefa í líkamann og ítrekað tekið hana hálstaki svo hún missti andann, allt með þeim afleiðingum að hún hlaut rifbeinsbrot, rispur á kvið, marbletti á vinstri upphandlegg, rispur á hægri upphandlegg, skurð á vísifingur hægri handar, fleiður á baugfingri hægri handar og skurð á vinstra eyra.
Telst þetta varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
- Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa auk hæfilegra málsvarnarlauna til handa skipuðum verjanda.
- Ákærði hefur játað brot sitt skýlaust. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og er brot hans rétt heimfært til refsiákvæðis í ákæru.
- Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sakflytjendum hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
- Ákærði er fæddur í apríl 1973. Samkvæmt sakavottorði, dags. 23. febrúar 2026, hefur ákærði ekki gerst sekur um brot sem áhrif hafa á ákvörðun refsingar í máli þessu. Við ákvörðun refsingar er litið til þess að ákærði gerðist sekur um ofbeldisbrot sem beindist gegn lífi og heilsu brotaþola, sbr. 1. og 3. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Á hinn bóginn játaði ákærði háttsemina skýlaust og hefur ekki áður gerst sekur um ofbeldisbrot og er það metið honum til refsilækkunar. Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í tvo mánuði sem rétt þykir að skilorðsbinda að öllu leyti.
- Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Þorgils Þorgilssonar lögmanns, sem þykir hæfilega ákveðin eins og í dómsorði greinir að meðtöldum virðisaukaskatti, og 55.130 krónur í annan sakarkostnað.
- Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi. Hlynur Jónsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Kjartan Svanur Einarsson, sæti fangelsi í tvo mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Þorgils Þorgilssonar lögmanns, 141.360 krónur, og 55.130 krónur í annan sakarkostnað.
Hlynur Jónsson