Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-4401/2025:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi)

gegn

Przemyslaw Ginter

(Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður)

Fíkniefnaakstur. Játningarmál. Svipting ökuréttar. Sviptingarakstur. Umferðarlagabrot.

Sakborningur, sem játaði brot sín, var sakfelldur fyrir ítrekuð umferðarlagabrot og dæmdur til að sæta fangelsi í 75 daga og sviptur ökurétti ævilangt.

Dómur

  1. Mál þetta, sem dómtekið var 21. apríl 2026, var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 14. ágúst 2025, á hendur Przemyslaw Ginter, kt. […], […], „I. fyrir þjófnað, með því að hafa, [þriðju]daginn 10. desember 2024, brotist inn í söluturninn Póló að […] og stolið þaðan sjóðsvél og sígarettupökkum að óþekktu söluverðmæti.

    Telst þessi háttsemi varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

    M: […]

II.

fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, þriðjudaginn 10. desember 2024, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist amfetamín 375 ng/ml) um Flatahraun við Skút[a]hraun í Hafnarfirði, þar sem lögregla hafði afskipti af ákærða.

Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2., mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95., gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

M: […]

III.

fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, sunnudaginn 19. janúar 2025, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist amfetamín 360 ng/ml) um Hringbraut við N1 í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

M: […]

IV.

fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, þriðjudaginn 10. júní 2025, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Dverghellu við Straumhellu í Hafnarfirði, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr., umferðarlaga nr. 77/2019.

M: […]

V.

fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, fimmtudaginn 29. maí 2025, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist amfetamín 400 ng/ml) um Kaplahraun í Hafnarfirði, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

M: […] Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019.“

  1. Verjandi ákærða krefst fyrir hans hönd vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar málsvarnarþóknunar sér til handa. Þá er þess krafist að sakarkostnaður verði lagður á ríkissjóð.
  2. Ákæruvaldið féll frá ákæru samkvæmt ákærulið I í þinghaldi 10. apríl 2026, sbr. 2. mgr. 153. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Eftir standa ákæruliðir II, III, IV og V, en ákærði játaði brot sín samkvæmt þeim ákæruliðum við þingfestingu málsins 8. október 2025.

    Niðurstaða varðandi sekt ákærða o.fl.

  3. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
  4. Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

    Niðurstaða varðandi refsingu ákærða og önnur atriði

  5. Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 7. ágúst 2025, var ákærði með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur […] 2024 dæmdur til greiðslu fésektar og sviptur ökuréttindum í tvö ár og þrjá mánuði vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þá gekkst ákærði undir greiðslu fésektar með sekt Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 10. desember 2024 og að sæta sviptingu ökuréttinda í þrjú ár frá 14. október 2026 fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Brot ákærða samkvæmt ákærulið II voru framin sama dag og ákærði skrifaði undir lögreglustjórasekt Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Er refsing ákærða í þessu máli hegningarauki við fyrri refsingu.
  6. Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður samkvæmt framansögðu lagt til grundvallar að ákærði hafi í þriðja skipti ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna og í fyrsta skipti sviptur ökurétti, sbr. 5. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga, en fyrri brot ákærða hafa ítrekunaráhrif, sbr. 71. gr. sömu laga. Ákærði er svo í málinu dæmdur fyrir að hafa ekið bifreið í fjögur skipti sviptur ökurétti og í þrígang undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
  7. Undir meðferð málsins játaði ákærði brot sín skýlaust. Horfir það honum til málsbóta, sbr. 8. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga.
  8. Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju og 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 75 daga.
  9. Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærði sviptur ökurétti ævilangt frá uppkvaðningu dómsins að telja.
  10. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Ómars Arnar Bjarnþórssonar lögmanns, sem þykir hæfilega ákveðin 777.480 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 330.030 krónur í annan sakarkostnað, sbr. 1. mgr. 235. gr., sbr. 1. mgr. 233. gr., laga nr. 88/2008.
  11. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi fyrir Evu Lind Ingadóttur saksóknarfulltrúa.
  12. Jóhannes Rúnar Jóhannsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Przemyslaw Ginter, sæti fangelsi í 75 daga.

Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Ómars Arnar Bjarnþórssonar lögmanns, 777.480 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 330.030 krónur í annan sakarkostnað.

Jóhannes Rúnar Jóhannsson

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 1. mgr. 70. gr.71. gr.77. gr.78. gr.1. mgr. 244. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 2. mgr. 153. gr.164. gr.1. mgr. 233. gr.1. mgr. 235. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 50. gr.2. mgr. 50. gr.1. mgr. 58. gr.1. mgr. 95. gr.99. gr.101. gr.