Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 23. júní 2023.
Mál nr. S-2641/2023:
Héraðssaksóknari
(Kristín Ingileifsdóttir saksóknari)
gegn
Ásgeiri Arnóri Stefánssyni
(Magnús Jónsson lögmaður)
Lykilorð
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var 31. maí sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af héraðssaksóknara 13. apríl 2023, á hendur Ásgeiri Arnóri Stefánssyni, kt. […], […], Reykjavík, „fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum í rekstri einkahlutafélagsins A, kt. […], sem framkvæmdastjóra og stjórnarmanni félagsins, með því að hafa eigi staðið skil á staðgreiðsluskilagreinum félagsins tímabilin mars, maí, júní og ágúst 2022 á lögmæltum tíma og hafa eigi staðið ríkissjóði skil á staðgreiðslu opinberra gjalda innan lögboðins frests, í samræmi við fyrirmæli III. kafla laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, sem haldið var eftir af launum starfsmanna einkahlutafélagsins vegna greiðslutímabilanna desember rekstrarárið 2020, nóvember og desember rekstrarárið 2021, og febrúar til og með ágúst rekstrarárið 2022, samtals að fjárhæð kr. 83.427.631 sem sundurliðast sem hér greinir:
Desember kr. 2.942.132 Nóvember kr. 7.528.092 Desember kr. 5.544.974 kr. 13.073.066 Febrúar kr. 9.332.692 Mars kr. 9.711.164 Apríl kr. 9.871.457 Maí kr. 11.660.423 Júní kr. 11.770.691 Júlí kr. 9.616.381 Ágúst kr. 5.449.625 kr. 67.412.433 Samtals kr. 83.427.631 Framangreint brot ákærða telst varða við 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. einnig 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegra málsvarnarlauna sér til handa.
Ákærði er fæddur í […]Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 4. apríl 2023, hefur sakaferill hans ekki áhrif í máli þessu. Við ákvörðun refsingar ákærða verður litið til greiðlegrar játningar hans. Þá verður litið til yfirlýsingar bókara A sem ákæruvaldið hefur ekki gert athugasemdir við. Að framangreindu virtu og með vísan til 77. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 14 mánuði, en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Þá ber jafnframt að dæma ákærða til greiðslu fésektar. Að teknu tilliti til innborgunar sem lækkar fésektarlágmark vegna eins tímabils, sbr. 1. og 2. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, verður sekt ákærða ákveðin 152.553.000 krónur og ber ákærða að greiða sektina innan fjögurra vikna en sæta ella fangelsi í 360 daga.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Magnúsar Jónssonar lögmanns, 451.980 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, en ekki leiddi annan kostnað af meðferð málsins. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Kristín Ingileifsdóttir saksóknari. Barbara Björnsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Ásgeir Arnór Stefánsson, sæti fangelsi í 14 mánuði en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði greiði 152.553.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa að telja en sæti ella fangelsi í 360 daga.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Magnúsar Jónssonar lögmanns, 451.980 krónur.