Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. E-2878/2023:

Olís ehf.

(Lilja Jónasdóttir lögmaður)

gegn

Abíl ehf

(Sjálfur ólöglærður)

Útivist.

Mál fellt niður vegna útivistar stefnanda.

Mál þetta, sem tekið var til úrskurðar 4. júní 2024 um kröfu stefnda um niðurfellingu málsins og um málskostnað, var höfðað 4. apríl 2023 Olís hf., Skútuvogi 5, Reykjavík á hendur Abíl ehf., Viðarhöfða 6, Reykjavík til greiðslu skuldar vegna vöruúttekta.

Stefnandi krafðist þess í málinu að stefndi greiddi honum skuld að höfuðstól 1.618.848 krónur ásamt nánar tilteknum dráttarvöxtum og málskostnaði að mati dómsins. Stefndi krafðist aðallega sýknu en verulegrar lækkunar á kröfum stefnanda til vara. Auk þess krafðist stefndi málskostnaðar úr hendi stefnanda.

Í þessum þætti málsins krefst stefndi niðurfellingar þess og úrskurðar um málskostnað sér til handa, en útivist varð af hálfu stefnanda.

Þegar málið var þingfest 27. apríl 2023 sótti fyrirsvarsmaður stefnda þing og óskaði frests til að skila greinargerð. Að fengnum frekari frestum var greinargerð stefnda lögð fram á reglulegu þingi 11. janúar 2024. Eftir úthlutun málsins til dómara var það tekið fyrir í þinghaldi 20. febrúar 2024. Ólöglærður fyrirsvarsmaður stefnda, Andri Þórsson, sótti þing af hans hálfu. Af hálfu stefnanda sótti Lilja Jónasdóttir lögmaður þing og lagði fram sjö reikninga, til stuðnings hluta af stefnukröfunni. Lögmaðurinn upplýsti að hún tæki við málinu af fyrri lögmanni. Ákveðið var að aðilar myndu skoða hvort sáttagrundvöllur væri í málinu og var því frestað til sáttaviðræðna til 19. mars s.á.

Þinghaldinu sem ákveðið var þann dag var frestað utan réttar. Það var vegna þess að daginn áður hafði dóminum borist beiðni Brynju Kristínar Magnúsdóttur lögmanns, af hálfu Lilju Jónasdóttur lögmanns, þar sem óskað var eftir frekari fresti til sáttaviðræðna. Með tölvuskeyti 27. maí 2024 upplýsti Brynja Kristín dóminn um að ekki hefði tekist að ná sátt í málinu og óskað var eftir því að fundinn yrði tími fyrir næstu fyrirtöku málsins. Fyrirsvarsmaður stefnda og lögmaður stefnanda fengu afrit af tölvuskeytinu. Samdægurs var boðað til þinghalds í málinu í dag, 4. júní 2024, kl. 13.30 í dómsal 302, með tölvuskeyti á netfang lögmanns stefnanda og netfang fyrirsvarsmanns stefnda.

Til þinghaldsins mætti ólöglærður fyrirsvarsmaður stefnda á boðuðum tíma, en þing var ekki sótt af hálfu stefnanda. Gætt var leiðbeiningarskyldu. Þegar sá tími var liðinn sem fyrirtakan átti samkvæmt boðun að standa krafðist fyrirsvarsmaður stefnda úrskurðar um niðurfellingu málsins og um málskostnað. Voru þær kröfur teknar til úrskurðar eftir að fyrirsvarsmaðurinn hafði upplýst dóminn um áætlaða vinnu og tíma sem hann hafi varið til þess að taka til varna í málinu. Þar á meðal er tími sem hann hefur varið í þingsókn og til ritunar greinargerðar, auk ferðatíma til og frá heimili í Keflavík til að sækja þinghöld í málinu.

Niðurstaða

Mál verður fellt niður ef stefnandi sækir ekki þing og hefur ekki lögmæt forföll, sbr. b- lið 1. mgr. 105. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Engar upplýsingar hafa borist dóminum um að lögmaður stefnanda hafi lögmæt forföll. Boðun til þinghaldsins var send á netfang lögmannsins sem skráð er í málaskrá dómsins, en upplýsingar um símanúmer lögmannsins eru ekki skráðar í málaskrána. Með vísan til framangreinds lagaákvæðis verður málið fellt niður með úrskurði þessum.

Ef mál verður fellt niður af framangreindri ástæðu og stefndi sækir þing og krefst málskostnaðar kveður dómari samkvæmt 2. mgr. 105. gr. laga um meðferð einkamála, upp úrskurð um kröfuna og um niðurfellingu málsins.

Í 2. mgr. 130. gr. laga um meðferð einkamála er mælt fyrir um það að stefnanda skuli gert að greiða stefnda málskostnað ef mál er fellt niður af annarri ástæðu en þeirri að stefndi efni þá skyldu sem hann er krafinn um í máli. Samkvæmt framansögðu ber að fallast á kröfu stefnda og gera stefnanda að greiða honum málskostnað, sem hæfilegur er ákveðinn 150.000 krónur. Kristrún Kristinsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð:

Mál þetta fellur niður. Stefnandi, Olís ehf., greiði stefnda, Abíl ehf., 150.000 krónur í málskostnað.

Kristrún Kristinsdóttir

Heimildaskrá