Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-3984/2022:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Gunnhildur Anna Alfonsdóttir saksóknarfulltrúi)

gegn

Inga Páli Bollasyni

(Björgvin Halldór Björnsson lögmaður)

Fangelsi. Játningarmál. Nytjastuldur. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot.

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og hegningarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 8 mánuði auk þess sem ævilöng svipting ökuréttar ákærða var áréttuð.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var 30. nóvember 2022, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 13. september 2022, á hendur Inga Páli Bollasyni kt. [...], [...], Reykjavík, fyrir eftirtalin umferðalagabrot og nytjastuld, framin árið 2021, með því að hafa:

  1. Þriðjudaginn 23. nóvember, í heimildarleysi tekið bifreiðina [...] frá Stjörnuporti í Reykjavík og ekið henni um höfuðborgarsvæðið og jafnframt ekið bifreiðinni sviptur ökurétti, og óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist amfetamín 335 ng/ml) og án þess að hafa ökuljós tendruð, að Akrafjallsvegi við Kirkjuból á Akranesi, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn 25. nóvember.

    Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 34. gr., sbr. 1. mgr. 94. gr., 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

  2. Fimmtudaginn 25. nóvember, í heimildarleysi tekið bifreiðina [...] af plani lögreglustöðvarinnar á Akranesi og ekið bifreiðinni [...], sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist amfetamín 230 ng/ml) að dælustöð [...] á Kjalarnesi í Reykjavík, þar sem lögregla hafði afskipti af ákærða.

    Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. og 101. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

    Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegra málsvarnarlauna sér til handa.

    Ákærði er fæddur í [...]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 9. september 2022, á ákærði sakaferil frá árinu 2010 en síðasti refsidómurinn er frá [...] 2021 er hann hlaut 30 daga fangelsi fyrir líkamsárás og fjársvik. Fyrir liggur að ákærði fékk reynslulausn 3. október 2021 af eftirstöðvum refsingar, 70 dögum, sbr. fyrrgreindan dóm frá árinu 2021 en einnig dóm Landsréttar frá [...] 2020 þar sem ákærða var gert að sæta fangelsi í 5 mánuði, sem þá voru til fullnustu, og var reynslutími ákveðinn eitt ár. Ákærði hefur verið fundinn sekur um ítrekuð umferðarlagabrot, með því að aka í fimmta skiptið eftir að hann náði 18 ára aldri, undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna og í þriðja skiptið ekið sviptur ökuréttindum. Verður refsing vegna brota þessara ákvörðuð í samræmi við venju. Þá liggur fyrir að ákærði hefur með þeim brotum sem hann er nú sakfelldur fyrir rofið skilorð framangreindrar reynslulausnar og fer um ákvörðun refsingar samkvæmt 1. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga, sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Verða því fyrrgreindar eftirstöðvar dæmdar upp og refsing ákveðin í einu lagi. Ákærði hefur játað brot sín hreinskilnislega og er það virt honum til refsilækkunar.

    Litið er til greiðrar játningar ákærða en hann gekkst við brotum sínum á rannsóknarstigi og hér fyrir dómi. Þá lagði ákærði fram vottorð sem sýna að hann hefur tekið sig á, mætir reglulega í viðtöl til félagsráðgjafa á þjónustumiðstöð og hefur sinnt endurhæfingu í [...] en [...] er úrræði sem styður fólk til sjálfshjálpar sem hefur notið félagslegrar ráðgjafar félagsþjónustu í lengri tíma vegna langvarandi áfengis- og annarrar vímuefnanotkunar. Fær ákærði jákvæðar umsagnir frá [...]. Þá kom fram í máli ákærða að hann sé með staðfesta skólavist við [...] í vetur. Liggja fyrir gögn þessu til staðfestingar. Vísast í þessu sambandi til 5. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga.

    Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju, 60. og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 8 mánuði. Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ævilöng svipting ökuréttar ákærða áréttuð. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Björgvins Halldórs Björnssonar lögmanns, 195.300 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 319.235 krónur í annan sakarkostnað. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Gunnhildur Anna Alfonsdóttir saksóknarfulltrúi. Kristófer Kristjánsson aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Ingi Páll Bollason, sæti fangelsi í 8 mánuði. Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttar ákærða. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Björgvins Halldórs Björnssonar lögmanns, 195.300 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 319.235 krónur í annan sakarkostnað.

Kristófer Kristjánsson

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 60. gr.1. mgr. 70. gr.77. gr.1. mgr. 259. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.
Lög nr. 15/2016 Lög um fullnustu refsinga 1. mgr. 82. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 1. mgr. 34. gr.2. mgr. 50. gr.1. mgr. 58. gr.1. mgr. 94. gr.1. mgr. 95. gr.99. gr.101. gr.