Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 29. september 2022.
Mál nr. S-3534/2022:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Baldri Erni Magnússyni
(Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Lykilorð
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir ofbeldisbrot. Hann játaði brot sitt skýlaust.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var 27. september sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 9. ágúst 2022, á hendur Baldri Erni Magnússyni, kt. […], […], Reykjavík, fyrir „líkamsárás með því að hafa, mánudaginn 25. janúar 2021, innandyra í verslun Krónunnar að Rofabæ 39 í Reykjavík, veist með ofbeldi að starfsmanni verslunarinnar, A, kt. […], sparkað í líkama hans og slegið hann ítrekað með krepptum hnefa í andlit.
Mál nr. 007-2021-[…]
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Verjandi ákærða krefst þess að ákærða verði ekki gerð frekari refsing en til vara vægustu refsingar sem lög leyfa og að refsingin verði skilorðsbundin. Þá krefst hann þóknunar sér til handa og leggur málið í dóm.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði hefur játað brot sitt greiðlega hér fyrir dómi og horfir það til mildunar. Samkvæmt sakavottorði hans var hann með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur […] 2014 dæmdur í 30 daga fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára vegna brots gegn 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga. Með dómi Hæstaréttar Íslands […] 2017 var dómurinn tekinn upp og refsing ákveðin í einu lagi 18 mánaða fangelsi, vegna brota gegn 244. gr., 252. gr. og 252. gr., sbr. 20. gr., almennra hegningarlaga. Sneri Hæstiréttur dómi héraðsdóms sem hafði ekki gert honum refsingu með vísan til 16. gr. almennra hegningarlaga og vitsmunaþroska. Þá var ákærði með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur […] 2018 dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir rán. Brot hans var litið alvarlegum augum og var um ítrekun að ræða, sbr. 255. gr. almennra hegningarlaga. Sjá má á sakavottorði ákærða að hann hefur ekki staðið skilyrði reynslulausnar sem honum hefur verið veitt.
Ákærði býr, eins og fram er komið, við […]. Samkvæmt gögnum málsins, m.a. vottorði læknis […], er hann […]. Þá glímir hann enn við fíknivanda. Ákærði hefur hins vegar verið metinn sakhæfur en bent er á í dómi Hæstaréttar að líta verði til stöðu ákærða og gæta þess að hann fái þá heilbrigðisþjónustu sem hann þarf á að halda. Í því sambandi hefur verið vísað til heimildar 1. mgr. 22. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga. Fyrir liggur bréf frá […] þar sem fram kemur að hann hefur nýtt sér aðstoð með hléum frá 2017 og jákvæðar breytingar urðu á hans högum þegar hann flutti í íbúð þar sem hann býr í sjálfstæðri búsetu en samhliða fær hann áfram stuðning […].
Ákærði hefur enn gerst sekur um ofbeldisbrot og ber við ákvörðun refsingar að líta til 1. mgr. 218. c. gr. almennra hegningarlaga. Þó að líkamsárásin teljist ekki vera meiri háttar var hún með öllu tilefnislaus. Með vísan til framangreinds og 5., 6. og 8. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga þykir hæfileg refsing ákærða ákveðin 45 daga fangelsi. Þegar litið er til sakaferils ákærða, þess að hvorki er langt liðið frá því að brot hans var framið né komin reynsla á að ákærði geti haldið sig frá neyslu er ekki efni til að fresta fullnustu refsingarinnar.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Vilhjálms H. Vilhjálmssonar lögmanns, 223.200 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Sigríður Hjaltested héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Baldur Örn Magnússon, sæti fangelsi í 45 daga. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Vilhjálms H. Vilhjálmssonar lögmanns, 223.200 krónur.
Sigríður Hjaltested