Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 2. febrúar 2021.
Mál nr. S-6543/2020:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X
(Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 5. október 2020, á hendur X, kt. [...], [...], [...], fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, sunnudaginn 12. apríl 2020, ekið bifreiðinni [...], sviptur ökurétti, undir áhrifum áfengis og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist vínandamagn 1,07 ‰, amfetamín 335 ng/ml og kókaín 45 ng/ml) um [...],í Reykjavík, við hús nr. [...],, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 49. gr., 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. gr. laga nr. 77/2019.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í [...] [...]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 1. október 2020, hefur hann 15 sinnum frá árinu 2005 hlotið dóm fyrir brot gegn umferðarlögum, hegningarlögum, vopnalögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Nú síðast hlaut hann 8 mánaða fangelsisdóm [...] í Héraðsdómi [...].
Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 12 mánuði. Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ævilöng ökuréttarsvipting ákærða áréttuð. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Vilhjálms
H.
Vilhjálmssonar lögmanns, 188.480 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti, og 165.110 krónur í annan sakarkostnað. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari. Barbara Björnsdóttir héraðsdómari kveður upp dóminn.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, X, sæti fangelsi í 12 mánuði. Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Vilhjálms
H.
Vilhjálmssonar lögmanns, 188.480 krónur og 165.110 krónur í annan sakarkostnað.