Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-5237/2020:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Sigrún Inga Guðnadóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

X

(Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður)

Ákærði var sakfelldur fyrir vopnalagabrot, þjófnað og fíkniefnalagabrot.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var í gær, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 1. september 2020, á hendur X, kt. [...], [...], [...], fyrir eftirtalin fíkniefna-, vopna- og hegningarlagabrot:

  1. Vopnalagabrot með því að hafa föstudaginn 15. nóvember 2019, við [...] í Reykjavík, haft í vörslum sínum á almannafæri vasahníf (bitvopn með blaði lengra en 12 cm) sem lögregla fann við öryggisleit í bakpoka sem hann bar.

    Telst brot þetta varða við 1. mgr., sbr. a. lið 2. mgr. 30. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998.

  2. Þjófnað með því að hafa, miðvikudaginn 1. janúar 2020, í félagi við Y, kt. [...], stolið bakpoka með eigum A, kt. [...], úr læstum skáp í anddyri Sundhallar Reykjavíkur við Barónsstíg 45a í Reykjavík, að óþekktu verðmæti, en Y tók aðgangsmiðann að skápnum í heimildarleysi og afhenti X hann sem opnaði skápinn og gekk út með bakpokann.

    Telst brot þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

  3. Húsbrot með því að hafa, föstudaginn 21. febrúar 2020 brotist í heimildarleysi inn á heimili B, kt. [...], að [...] í Reykjavík, með því að spenna upp útidyrahurðina með kúbeini.

    Telst brot þetta varða við 1. mgr. 231. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

  4. Fíkniefnalagabrot með því að hafa, laugardaginn 28. mars 2020, haft í vörslum sínum 1,25 g af amfetamíni sem lögregla fann við öryggisleit í vinstri buxnavasa ákærða.

    Telst brot þetta varða við 2., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018.

  5. Þjófnað með því að hafa, laugardaginn 28. mars 2020, í félagi við Z, kt. [...], brotist inn í bifreiðina [...], og stolið þaðan fjórum göngustöfum, ryksugu, gönguskóm og útivistarfatnaði allt að óþekktu verðmæti.

    Telst brot þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

  6. Þjófnað með því að hafa, sunnudaginn 29. mars 2020 í félagi við Z, kt. [...], brotist inn í verslun Nordic Store, Lækjargötu 2 í Reykjavík, og stolið þaðan tíu Canada Goose úlpum samtals að áætluðu verðmæti kr. 1.449.900,-, en fimm úlpur fundust í íbúð á [...] í Reykjavík þar sem ákærðu voru handteknir daginn eftir.

    Telst brot þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

  7. Fíkniefnalagabrot með því að hafa, miðvikudaginn 22. apríl 2020, haft í vörslum sínum 2,51 g af amfetamíni sem lögregla fann við öryggisleit í brjóstvasa ákærða.

    Telst brot þetta varða við 2., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018.

  8. Þjófnað með því að hafa, fimmtudaginn 30. apríl 2020, stolið læstu Cube reiðhjóli úr [...] að [...] í Reykjavík að óþekktu verðmæti.

    Telst brot þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Jafnframt er þess krafist að ákærði verði dæmdur til að sæta upptöku á 3,76 g af amfetamíni samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018 og upptöku á vasahníf samkvæmt heimild í1. mgr. 37. gr. vopnalaga nr. 16/1998.

    Við þingfestingu málsins í gær lýsti sækjandi því að fallið væri frá ákæruliðum 3 og 5.

    Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa, sem verði öll skilorðsbundin, og hæfilegrar þóknunar sér til handa.

    Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

    Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

    Ákærði er fæddur í [...] [...]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 27. ágúst sl., á hann að baki sakaferil sem nær aftur til ársins 2012. Hann hefur fimm sinnum hlotið dóm og einu sinni gengist undir lögreglustjórasátt vegna brota gegn umferðarlögum, hegningarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Þann [...] 2019 var ákærði dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir ýmis brot. Þann [...] 2020 var ákærði sakfelldur fyrir ýmis brot og fyrrinefndur dómur tekinn upp og dæmdur með, en ákærði var þá dæmdur til sjö mánaða fangelsis, skilorðsbundið til tveggja ára. Brot þau sem ákærði er nú sakfelldur fyrir voru framin fyrir uppkvaðningu síðastgreinda dómsins, og brotið samkvæmt 1. lið ákærunnar raunar einnig fyrir dóminn frá því í [...] 2019. Verður ákærða því gerður hegningarauki, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með hliðsjón af framangreindu, skýlausri játningu ákærða og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

    Ákærði sætir nú gæsluvarðhaldi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Þar sem gæsluvarðhaldið er vegna fleiri mála sem von er á útgáfu ákæru í helst gæsluvarðhaldið áfram og eru ekki efni til að mæla fyrir um áhrif þess á refsingu í þessu máli.

    Með vísan til lagaákvæða í ákæru eru gerð upptæk 3,76 g af amfetamíni og vasahnífur sem hald var lagt á við rannsókn málsins. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Ómars Arnar Bjarnþórssonar lögmanns, 447.330 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, en ekki leiddi annan kostnað af meðferð málsins. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Sigrún Inga Guðnadóttir aðstoðarsaksóknari. Barbara Björnsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, X, sæti fangelsi í 60 daga en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Ákærði sæti upptöku á 3,76 g af amfetamíni og vasahníf. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Ómars Arnar Bjarnþórssonar lögmanns, 447.330 krónur.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.77. gr.78. gr.1. mgr. 231. gr.1. mgr. 244. gr.
Lög nr. 22/1955 4. gr.
Lög nr. 65/1974 Lög um ávana- og fíkniefni 2. gr.5. gr.6. mgr. 5. gr.6. gr.
Lög nr. 16/1998 Vopnalög 2. mgr. 30. gr.1. mgr. 36. gr.1. mgr. 37. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 1. mgr. 95. gr.164. gr.