Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 29. júní 2020.
Mál nr. S-3057/2020:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Heklu Bender Bjarnadóttur
(Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Lykilorð
Útdráttur
Ákærða sakfelld fyrir umferðarlagabrot.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var 24. júní 2020, var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 12. maí 2020, á hendur „Heklu Bender Bjarnadóttur, […] fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, mánudaginn 2. september 2019, ekið bifreiðinni […] svipt ökurétti og óhæf til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja (í blóði mældist alprazólam 3,6 ng/ml, amfetamín 310 ng/ml, klónazepam 59 ng/ml, kókaín 95 ng/ml og MDMA 205 ng/ml) um Grensásveg í Reykjavík, við Sólbaðsstofuna Smart, þar sem lögregla hafði afskipti af ákærðu. M: 007-2019-55703
Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 48., 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., allt sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. gr. laga nr. 77/2019.“
Verjandi ákærðu krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærða hefur skýlaust játað brot sitt. Sannað er með játningu ákærðu og öðrum gögnum málsins að ákærða er sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök og er brot hennar rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru.
Ákærða er fædd […] 1997. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 6. maí 2020, var ákærðu gerð sektarrefsing með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 20. september 2017 fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Ákærða var dæmd í skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára með dómi sama dómstóls 27. júní 2019, m.a. fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og fyrir akstur svipt ökuréttindum. Hefur sá dómur ítrekunaráhrif í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 við úrlausn máls þessa, frá þeim degi er hann var kveðinn upp og óháð því hvenær hann var birtur ákærðu, sbr. t.d. dóm Hæstaréttar 30. október 2008 í máli nr. 92/2008.
Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður því við það miðað að ákærðu sé nú í þriðja sinn gerð refsing fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og í annað sinn fyrir akstur svipt ökuréttindum, allt innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga. Á hinn bóginn horfir til refsimildunar skýlaus játning ákærðu fyrir dómi, sbr. 9. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga.
Með brotum þeim sem ákærða er nú sakfelld fyrir hefur hún rofið skilorð dómsins frá 27. júní 2019. Ber því að taka hann upp og gera ákærðu refsingu í einu lagi, sbr. 60. og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Með hliðsjón af sakarefni málsins þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin fangelsi í 90 daga, en fresta skal fullnustu 60 daga af þeirri refsingu og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærða svipt ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja.
Ákærða greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, 114.700 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti, og 228.390 krónur í annan sakarkostnað.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari fyrir Elínu Hrafnsdóttur aðstoðarsaksóknara. Björg Valgeirsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.
D Ó M S O R Ð:
Ákærða, Hekla Bender Bjarnadóttir, sæti fangelsi í 90 daga, en fresta skal fullnustu 60 daga af þeirri refsingu og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940. Ákærða er svipt ökurétti ævilangt frá birtingu dómsins að telja.
Ákærða greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, 114.700 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti, og 228.390 krónur í annan sakarkostnað.
Björg Valgeirsdóttir