Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-1554/2020:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Finni Má Árnasyni

(Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)

Akstur sviptur ökurétti. Fangelsi. Játningarmál. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot.

Ákærði sakfelldur fyrir akstur sviptur ökurétti. Dæmdur í 6 mánaða fangelsi.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 3. mars 2020, á hendur Finni Má Árnasyni, kt. [...], [...], [...], fyrir eftirtalin umferðarlagabrot, með því að hafa:

  1. Laugardaginn 2. júní 2018 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti um Reykjanesbraut í Hafnarfirði, við Kaplakrika, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
  2. Laugardaginn 21. júlí 2018 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti um Dalveg í Kópavogi, við endurvinnslustöð Sorpu, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
  3. Laugardaginn 21. desember 2019 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti um Biskupstungnabraut í Grímsnes- og Grafningshreppi, við Fjallstún, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

    Teljast framangreind brot varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

    Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.

    Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

    Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

    Ákærði er fæddur í [...]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 24. febrúar 2020, gekkst ákærði undir greiðslu sektar með lögreglustjórasátt 6. maí 2009, meðal annars fyrir akstur undir áhrifum áfengis og akstur sviptur ökuréttindum. Hann var síðan dæmdur dæmdur í 60 daga fangelsi 14. mars 2014, fyrir akstur undir áhrifum áfengis og akstur sviptur ökuréttindum. Þá var hann dæmdur í 75 daga fangelsi 3. nóvember 2016, fyrir akstur undir áhrifum áfengis, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur sviptur ökuréttindum. Loks var ákærði dæmdur í 4 mánaða fangelsi 14. september 2017, fyrir akstur undir áhrifum áfengis og akstur sviptur ökuréttindum. Sakaferill ákærða hefur að öðru leyti ekki áhrif á ákvörðun refsingar en miðað er við að ákærði hafi með brotum sínum nú í fimmta skipti gerst sekur um akstur sviptur ökuréttindum innan ítrekunarramma 3. mgr. 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

    Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 6 mánuði. Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, 105.400 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Árni Bergur Sigurðsson saksóknarfulltrúi. Harpa Sólveig Björnsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Finnur Már Árnason, sæti fangelsi í 6 mánuði. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, 105.400 krónur.

Harpa Sólveig Björnsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 3. mgr. 71. gr.77. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 1. mgr. 58. gr.1. mgr. 95. gr.