Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 5. mars 2019.
Mál nr. S-14/2019:
Ákæruvaldið
(Margrét Herdís Jónsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
X
Mál
þetta sem dómtekið er í dag var höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum
á höfuðborgarsvæðinu þann 15. janúar 2019 „á hendur X, kt.
[...]
,
[...]
,
[...]
, fyrir eftirtalin brot:
I.
Líkamsmeiðingar
af gáleysi og umferðarlagabrot í Reykjavík með því að hafa mánudaginn 5.
desember 2016 ekið bifreiðinni
[...]
vestur
Fjallkonuveg án gildra ökuréttinda, en ákærði var í akstursbanni, án
nægjanlegrar aðgæslu eða varúðar og án þess að aka nægilega hægt miðað við
aðstæður þegar bifreiðin nálgaðist hópbifreið, sem numið hafði staðar til þess
að hleypa farþegum inn og út, í myrkri og á götu sem var blaut og á ríflega
hálfslitnum hjólbörðum og með því að hafa ekið á A, kt.
[...]
, með þeim afleiðingum að A hlaut viðbeinsbrot á hægra
viðbeini.
Telst
þetta varða við 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. og 2.
mgr. 4. gr., 1. mgr. og b., h. og i. lið 2. mgr. 36. gr. og 1. mgr. 48. gr.,
sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
II.
Fíkniefnalagabrot
með því að hafa, 13. september 2017, haft í vörslum sínum 0,63 grömm af
amfetamíni sem lögregla fann í buxnavasa ákæra við leit á honum utandyra við
[...]
í Reykjavík.
Telst þetta varða við
2. gr., sbr., 5. og 6.
gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr.
68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og
önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
Þess
er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls
sakarkostnaðar.
Krafist er upptöku á
0,63
grömmum af amfetamíni sem lögreglan lagði hald á við leið á ákærða, samkvæmt 6.
og 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001
.“
Ákærða var birt
fyrirkall sem hafði að geyma viðvörun samkvæmt 1. mgr. 161. gr. laga um meðferð
sakamála nr. 88/2008. Þrátt fyrir þetta sótti ákærði ekki þing og ekki var
Lykilorð
Ávana- og fíkniefni. Líkamsmeiðing af gáleysi. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, líkamsmeiðingar af gáleysi og fíkniefnalagabrot.
I.
Líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot í Reykjavík með því að hafa mánudaginn 5. desember 2016 ekið bifreiðinni [...] vestur Fjallkonuveg án gildra ökuréttinda, en ákærði var í akstursbanni, án nægjanlegrar aðgæslu eða varúðar og án þess að aka nægilega hægt miðað við aðstæður þegar bifreiðin nálgaðist hópbifreið, sem numið hafði staðar til þess að hleypa farþegum inn og út, í myrkri og á götu sem var blaut og á ríflega hálfslitnum hjólbörðum og með því að hafa ekið á A, kt. [...], með þeim afleiðingum að A hlaut viðbeinsbrot á hægra viðbeini.
Telst þetta varða við 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. og 2. mgr. 4. gr., 1. mgr. og b., h. og i. lið 2. mgr. 36. gr. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
II.
Fíkniefnalagabrot með því að hafa, 13. september 2017, haft í vörslum sínum 0,63 grömm af amfetamíni sem lögregla fann í buxnavasa ákæra við leit á honum utandyra við [...] í Reykjavík.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr., 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Krafist er upptöku á 0,63 grömmum af amfetamíni sem lögreglan lagði hald á við leið á ákærða, samkvæmt 6. og 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“
Ákærða var birt fyrirkall sem hafði að geyma viðvörun samkvæmt 1. mgr. 161. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Þrátt fyrir þetta sótti ákærði ekki þing og ekki var kunnugt um að hann væri forfallaður. Málið verður því dæmt á grundvelli framlagðra gagna og samkvæmt þeim hefur verið færð fram næg sönnun fyrir sekt ákærða. Hann verður því sakfelldur samkvæmt ákærunni, en brot hans eru þar rétt heimfærð til refsiákvæða.
Ákærði er fæddur í [...] [...]. Hann hefur tvisvar sinnum áður verið dæmdur fyrir brot gegn umferðarlögum, síðast í október 2018. Brot þau sem ákærði er nú sakfelldur fyrir voru framin fyrir uppkvaðningu dómsins og verður ákærða því dæmdur hegningarauki, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með vísan til framangreinds og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Með vísan til framangreindra lagaákvæða eru gerð upptæk 0,63 g af amfetamíni sem hald var lagt á við rannsókn málsins.
Engan kostnað leiddi af meðferð málsins.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Margrét Herdís Jónsdóttir saksóknarfulltrúi.
Barbara Björnsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði, X, sæti fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Upptæk skulu gerð til ríkissjóðs 0,63 g af amfetamíni.