Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-7/2018:

Ákæruvaldið

(Dagmar Ösp Vésteinsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Ingvari Erni Arnarsyni

(Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)

Ávana- og fíkniefni. Brot gegn valdstjórninni. Fangelsi. Umferðarlagabrot.

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlagabrot. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 10 mánuði.

Mál þetta, sem dómtekið var 6. júní síðastliðinn, var höfðað með tveimur ákærum. Fyrri ákæran var gefin út af héraðssaksóknara 2. janúar 2018 síðastliðinn, á hendur Ingvari Erni Arnarsyni, kennitala 000000-0000, [...], Reykjavík, „fyrir eftirtalin brot gegn almennum hegningarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni:

  1. Brot gegn valdstjórninni, með því að hafa fimmtudaginn 12. janúar 2017 við aðalinngang Hótels Héraðs, Miðvangi 5, Egilsstöðum, þegar lögreglumenn voru að færa hann út af hótelinu í handjárnum, skallað lögreglumanninn A í andlitið með þeim afleiðingum að A hlaut vægan roða og væga bólgu á nefhrygg.
  2. Brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, með því að hafa fimmtudaginn 12. janúar 2017 haft í vörslum sínum 7,88 g af amfetamíni og 3 töflur af MDMA   (Ecstasy)   sem   lögregla   fann   við   leit   í   bakpoka   ákærða   á lögreglustöðinni á Egilsstöðum eftir afskipti af honum sbr. 1. tl. ákæru.
  3. Brot   gegn   lögum   um   ávana   og   fíkniefni,   með   því   að   hafa,   aðfaranótt sunnudagsins 2. september 2017 haft í vörslum sínum 15,77 g af hassi og 47,54   g   af   marihuana   sem   lögregla   fann   við   leit   í   bakpoka   ákærða   á lögreglustöðinni við Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík eftir að lögregla hafði afskipti af ákærða í bílastæðahúsi við Vesturgötu í Reykjavík.

    Telst   háttsemi   skv.   1.   tl.   ákæru   varða   við   1.   mgr.   106.   gr.   almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og háttsemi skv. 2. og 3. tl. ákæru við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 ásamt síðari breytingum og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002. Þess   er   krafist   að   ákærði   verði   dæmdur   til   refsingar   og   greiðslu   alls sakarkostnaðar. Þá er krafist upptöku á 7,88 g af amfetamíni, 3 töflum af  MDMA (Ecstasy) og vigt, sem lagt var hald á sbr. 2. tl. ákæru og 15,77 g af hassi og 47,54 g af marihuana sem lagt var hald á sbr. 3. tl. ákæru, skv. 6. og 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002. Jafnframt er krafist upptöku á 10 töflum af lyfjum merktum Xanax sem ákærði framvísaði til lögreglu, þegar afskipti voru höfð af honum sbr. 3. tl. ákæru, skv. 3. mgr. 49. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 ásamt síðari breytingum.“

    Síðari ákærðan var gefin út af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 15. maí síðastliðinn. Þar er ákærði ákærður „fyrir eftirtalin umferðarlagabrot með því að hafa:

I

Aðfaranótt   þriðjudagsins   19.   desember   2017   í   Reykjavík   ekið   bifreiðinni   [...] sviptur ökurétti og ófær um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana og fíkniefna (í blóði mældist tetrahýdrókannabínól 9,2 ng/ml) af bifreiðastæði N1 við Vesturlandsveg og áfram austur Vesturlandsveg og síðan suður Höfðabakka þar sem ákærði stöðvaði aksturinn gegn rauðu ljósi á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls og lögregla hafði tal af honum, en ákærði taldi sig ekki þurfa að gera grein fyrir sér með skilríkjum af neinu tagi, og er grænt ljós kviknaði ekið áfram, þrátt fyrir stöðvunarmerki lögreglu með bláum blikkandi ljósum, austur Bæjarháls og síðan Hraunbæ uns aksturinn var stöðvaður við Hraunbæ 32 þar sem lögregla hafði aftur afskipti af ákærða og handtók hann.

II

Aðfaranótt laugardagsins 13. janúar 2018 í Mosfellsbæ ekið sömu bifreið sviptur ökurétti, ófær um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana og fíkniefna og undir áhrifum áfengis (í blóði mældist vínandamagn 0.60 ‰ og tetrahýdrókannabínól 9,2 ng/ml) norður Vesturlandsveg á móts við Háholt uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.

III

Að morgni miðvikudagsins 28. febrúar 2018 í Reykjavík ekið sömu bifreið sviptur ökurétti og ófær um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana og fíkniefna (í blóði mældist tetrahýdrókannabínól 1,3 ng/ml) um Vesturlandsveg uns aksturinn var stöðvaður við gatnamót Vesturlandsvegar og Reynisvatnsvegar.

Teljast brot í öllu liðum varða við  1.  sbr. 2. mgr. 45. gr. a og 1. mgr. 48. gr., og brot í lið II auk þess við 1. sbr. 2. mgr. 45. gr., en brot í I lið auk þess við 3. mgr. 5. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðalaga nr. 50/1987, sbr. 1. gr. laga nr. 48/1997. Þess   er   krafist   að   ákærði   verði   dæmdur   til   refsingar,   til   greiðslu   alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006.“

Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið brot þau sem honum eru gefin að sök í ákærunum og er játning hans studd sakargögnum.  Það eru því efni til að leggja dóm á málið samkvæmt 1. mgr. 164. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.  Samkvæmt þessu verður ákærði sakfelldur fyrir brotin sem eru réttilega færð til refsiákvæða í ákærunum. Ákærði var dæmdur í 6 mánaða fangelsi 22. febrúar 2017 fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna, of hraðan akstur og að aka sviptur ökurétti. Hann var einnig sviptur ökurétti ævilangt. Með þeim dómi var dæmdur skilorðshluti dóms frá 30. mars 2016 en þá var hann dæmdur í 6 mánaða fangelsi fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna og sviptur ökurétti. Hann var einnig sviptur ökurétti ævilangt. Árin á undan   hafði   ákærði   verið   alloft   sakfelldur   og   dæmdur   til   sektagreiðslna   eða skilorðsbundins fangelsis fyrir brot gegn umferðarlögum, fíkniefna- og hegningarlögum. Refsing ákærða verður ákveðin samkvæmt 77. gr. almennra hegningarlaga. Þá verður honum gerður hegningarauki, sbr. 78. gr. sömu laga. Það verður virt ákærða til málsbóta að hafa játað sök. Samkvæmt þessu verður refsing hans ákveðin 10 mánaða fangelsi. Ævilöng ökuleyfissvipting verður áréttuð. Þá verða gerð upptæk fíkniefni, lyf og vigt eins og krafist er og í dómsorði greinir. Loks verður ákærði dæmdur til að greiða sakarkostnað eins og í dómsorði greinir svo og málsvarnarþóknun verjanda síns sem ákveðin er með virðisaukaskatti í dómsorði.

Arngrímur Ísberg héraðsdómari kveður upp dóminn.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Ingvar Örn Arnarson, sæti fangelsi í 10 mánuði. Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt. Upptæk skulu vera 7,88 g af amfetamíni, 3 töflur af  MDMA (Ecstasy), vigt, 15,77 g af hassi, 47,54 g af maríjúana og 10 töflur af lyfjum merktum Xanax. Ákærði greiði 336.709 krónur í sakarkostnað og málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Jóns Bjarna Kristjánssonar lögmanns, 421.600 krónur.

Arngrímur Ísberg