Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 11. desember 2018.
Mál nr. S-680/2018:
Ákæruvaldið
(Kristmundur Stefán Einarsson saksóknarfulltrúi)
gegn
X
Útdráttur
Ákærði safelldur fyrir hegningar- og fíkniefnalagabrot.
X
Mál þetta, sem dómtekið var 5. desember síðastliðinn, var höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 13. nóvember síðastliðinn, á hendur X, kt. 000000-0000, [...], Reykjavík, „fyrir eftirtalin hegningar- og fíkniefnalagabrot:
I.
Hótanir um ofbeldi með því að hafa, miðvikudaginn 10. desember 2016, sent í tölvupósti til A, kt. 000000-0000, eftirfarandi ummæli sem voru til þess fallin að vekja ótta um líf, heilbrigði og velferð brotaþola og fjölskyldu hans:
1) „Djöfulin þarf að kála fólki eins og þér.“ 2) „Skyyyytt ykkur oll og drepeeep mig svooo hahaha…“ 3) „Ttuuu oggg fjolsssyndaaaan muuunu drepppas…“
Telst brot þetta varða við 233. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
II.
Fíkniefnalagabrot með því að hafa, þriðjudaginn 24. október 2017, haft í vörslum sínum, í sölu og dreifingarskyni, 241,70 g af maríhúana, 458,44 g af kannabislaufi, 89,32 g af kannabisstönglum, 68,53 g af niðurskorinni kannabisplöntu og 4 kannabisplöntur sem ákærði hafði ræktað um nokkurt skeið og til þess dags sem lögregla fann við húsleit, á heimili ákærða að [...] í Reykjavík, og lagði hald á.
Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 4., 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og jafnframt að framangreind fíkniefni verði gerð upptæk samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 og að ákærði verði dæmdur til að þola upptöku á kr. 104.000 sem lögregla haldlagði, sem er ætlaður ágóði af sölu fíkniefna, skv. 7. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Einkaréttarkrafa:
A, kt. 000000-0000, gerir kröfu um að ákærði verði dæmdur til að greiða brotaþola skaða- og miskabætur að fjárhæð kr. 200.000 með vöxtum skv. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38///2001 frá 10. desember 2016 þangað til mánuður er liðinn frá birtingu bótakröfu, en síðan með dráttarvöxtum skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. laganna, frá þeim degi til greiðsludags. Þá er gerð krafa um málskostnað að skaðlausu.“
Við þingfestingu lækkaði brotaþoli kröfu sína í 100.000 krónur og féll frá kröfu um vexti og málskostnað. Ákærði samþykkti kröfuna svo breytta. Verður ákærði dæmdur til að greiða hana.
Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið brot þau sem honum eru gefin að sök í ákærunni og er játning hans studd sakargögnum. Það eru því efni til að leggja dóm á málið samkvæmt 1. mgr. 164. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Samkvæmt þessu verður ákærði sakfelldur fyrir brotin sem eru réttilega færð til refsiákvæða í ákærunni. Ákærði hefur samþykkt upptökukröfur í ákæru og verður fallist á þær eins og í dómsorði greinir.
Samkvæmt sakavottorði ákærða hefur hann sex sinnum á árunum 2013 til 2016 verið sektaður fyrir brot gegn fíkniefnalögum. Hann var dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi ári 2015 fyrir brot gegn valdstjórninni og fíkniefnalagabrot og 2. september 2016 var hann dæmdur í 3 mánaða fangelsi fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna og fleiri brot gegn umferðar- og fíkniefnalögum. Refsing ákærða nú er hæfilega ákveðin 4 mánaða fangelsi. Fíkniefni og peningar verða gerð upptæk eins og í dómsorði greinir. Loks verður ákærði dæmdur til að greiða sakarkostnað eins og í dómsorði greinir.
Arngrímur Ísberg héraðsdómari kveður upp dóminn.
D ó m s o r ð:
Ákærði, X, sæti fangelsi í 4 mánuði. Ákærði greiði A 100.000 krónur. Upptæk skulu vera 241,70 g af maríjúana, 458,44 g af kannabislaufi, 89,32 g af kannabisstönglum, 68,53 g af niðurskorinni kannabisplöntu, fjórar kannabisplöntur og 104.000 krónur. Ákærði greiði 98.199 krónur í sakarkostnað.
Arngrímur Ísberg