Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 21. október 2016.
Útdráttur
Ákærða gert að sæta fangelsi í 12 mánuði fyrir umferðarlagabrot. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt.
X
(Stefán Karl Kristjánsson hrl.)
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, var höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu/héraðssaksóknara, dagsettri 23. ágúst 2016 , á hendur : „x, kt. 000000-0000, [...], Reykjavík, fyrir eftirtalin umferðarlagabrot, með því að hafa á árinu 2016:
- Sunnudaginn 13. mars ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og vegna áhrifa slævandi lyfja (í blóði mældist amfetamín 1000 ng/ml og nítrazepam 130 ng/ml) um [...], þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. M: 007-2016-13920
Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 44. gr., 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum breytingum.
- Miðvikudaginn 16. mars ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og vegna áhrifa slævandi lyfja (í blóði mældist amfetamín 1100 ng/ml og nítrazepam 175 ng/ml) um [...], þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. M: 007-2016-14745
Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 44. gr., 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum breytingum.
- Þriðjudaginn 10. maí ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 935 ng/ml) suður [...], til móts við [...], en lögregla stöðvaði aksturinn skömmu síðar á bifreiðastæði við [...]. M: 007-2016-26632
Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum breytingum.
- Fimmtudaginn 7. júlí ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti vestur [...], þar sem lögregla hafði afskipti af ákærða. M: 007-2016-39407
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum breytingum.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006.“
Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar er lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði sem er fæddur árið 1973 á að baki sakarferil sem nær aftur til ársins 1999. Hann hefur margítrekað ekið undir áhrifum fíkniefna og sviptur ökurétti. Síðast var hann dæmdur í 15 mánaða fangelsi þann 20. nóvember 2015. Var hann þá sakfelldur fyrir að hafa ítrekað ekið undir áhrifum fíkniefna og sviptur ökurétti svo og fyrir vörslur fíkniefna og þjófnað. Með brotum sínum þá rauf hann skilorð reynslulausnar sem honum hafði verið veitt á eftirstöðvum 4 mánaða fangelsisrefsingar sem hann hlaut dómi Héraðsdóms Vesturlands 15. mars 2013 og voru þær því dæmdar með.
Ákærði hefur nú verið sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum, í fjögur skipti á tímabilinu 13. mars-7. júlí 2016, þar af þrisvar með því að aka undir áhrifum fíkniefna og sviptur ökurétti. Í öllum tilvikum mældist mikið magn fíkniefna í blóði hans. Þessi brot hans eru nú ítrekuð og er refsing hans ákveðin í samræmi við dómvenju. Við ákvörðun refsingar er litið til 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1991.
Með hliðsjón af ofangreindu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 12 mánaða fangelsi.
Með vísan til tilvitnaðra ákvæða umferðarlaga í ákæru er áréttuð ævilöng ökuréttarsvipting ákærða. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs Stefáns Karls Kristjánssonar hrl. 122.760 krónur og 366.287 krónur í annan sakarkostnað.
D ó m s o r ð :
Ákærði, x, sæti fangelsi í 12 mánuði. Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttar ákærða. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns Stefáns Karls Kristjánssonar hrl. 122.760 krónur og 366.287 krónur í annan sakarkostnað.
Sigríður Hjaltested (sign.)