Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

X

(Brynjólfur Eyvindsson hdl.) Mál þetta, sem dómtekið var þriðjudaginn 20. september 2016, er höfðað með ákæru, útgefinni 15. ágúst 2016, á hendur X, kt. 000000-0000, [...], Reykjavík, fyrir brot gegn valdstjórninni og líkamsárás, með því að hafa, sunnudaginn 1. nóvember 2015, í kjölfar þess að ákærði var handtekinn og færður í fangageymslu á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í Reykjavík, kýlt X lögreglumann með krepptum hnefa í andlitið er X fylgdi ákærða á salerni í fangageymslu, með þeim afleiðingum að X hlaut yfirborðsáverka á höfði, tognun og ofreynslu á hálshrygg og brot á jaxli á hægri hlið í efri gómi.

Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. og 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar er lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sitt. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og er brot hans rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði er fæddur í október [...] og hefur hann ekki áður sætt refsingu. Hann er í máli þessu sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og líkamsárás, sem allnokkrir áverkar hlutust af. Til málsbóta horfir að hann hefur gengist greiðlega við broti sínu. Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í sex mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Brynjólfs Eyvindssonar hdl., 102.300 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Ákærði greiði 36.000 krónur í annan sakarkostnað.

Af hálfu ákæruvaldsins sótti málið Þorbjörg Sveinsdóttir saksóknarfulltrúi.

Ragnheiður Harðardóttir héraðsdómari kveður upp dóminn.

Dómsorð:

Ákærði, X, sæti fangelsi í sex mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Brynjólfs Eyvindssonar hdl., 102.300 krónur, og 36.000 krónur í annan sakarkostnað.

Ragnheiður Harðardóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.1. mgr. 106. gr.1. mgr. 218. gr.
Lög nr. 22/1955 4. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.