Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

X

Mál þetta sem dómtekið er í dag var höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu þann 15. mars "á hendur X, kt. [...], [...], Reykjavík, fyrir hótanir, með því að hafa á tímabilinu 1.-31. maí 2015, sent barnsmóður og fyrrverandi sambýliskonu sinni, A, skilaboð í síma hennar [...] sem innihélt ljósmynd af haglabyssuskoti sem á hafði verið skrifað nafnið „[...]“ ásamt eftirfarandi textaskilaboðum: „And this one yours. And i H Got one with your name on it.“, en skilaboðin voru til þess fallin að vekja hjá henni ótta um líf, heilbrigði og velferð sína. Telst þetta varða við 233. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar."

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sitt. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði er fæddur í febrúar 1994. Hann á að baki sakaferil sem ekki hefur áhrif á ákvörðun refsingar. Með hliðsjón af atvikum málsins sæti ákærði fangelsi í 30 daga, sem bundið verður skilorði með þeim hætti er í dómsorði greinir. Símon Sigvaldason héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, X, sæti fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Símon Sigvaldason.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.233. gr.
Lög nr. 22/1955 4. gr.