Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-703/2015:

D Ó M U R

máli nr. S-703/2015:

Ákæruvaldið

(Einar Laxness aðstoðarsaksóknari)

gegn

Sævari Erni Hilmarssyni

Ár

2016, miðvikudaginn 17. febrúar, er á dómþingi héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð

er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp

Ákæruvaldið (Einar Laxness) gegn Sævari Erni Hilmarssyni (Jón Egilsson hrl.),

sem tekið var til dóms að aflokinni aðalmeðferð hinn 15. febrúar sl.

Málið er höfðað með ákæru lögreglustjórans á

höfuðborgarsvæðinu, dagsettri 24. nóvember sl. á hendur ákærða, Sævari Þór

Hilmarssyni, kt. [...], Kristnibraut 16, Reykjavík, „

fyrir hótanir,

með því að hafa, í tvígang á árinu 2014, hótað A,

kt. [...], ofbeldi í neðangreindum fésbókarskilaboðum (facebook), sem ákærði

sendi á fésbókarsíðu A, en efni umræddra

skilaboða var til þess fallið að vekja hjá A ótta um líf hans og

velferð.

(Jón Egilsson hrl)

Hótanir.

Ákært var fyrir hótanir. Ákærða var ekki gerð sérstök refsing.

Ár 2016, miðvikudaginn 17. febrúar, er á dómþingi héraðsdóms Reykjavíkur,   sem   háð   er   í   Dómhúsinu   við   Lækjartorg   af   Pétri   Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp dómur í sakamálinu nr. 703/2015:  Ákæruvaldið (Einar Laxness) gegn Sævari Erni Hilmarssyni (Jón Egilsson hrl.), sem tekið var til dóms að aflokinni aðalmeðferð hinn 15. febrúar sl. Málið   er   höfðað   með   ákæru   lögreglustjórans   á   höfuðborgarsvæðinu, dagsettri 24. nóvember sl. á hendur ákærða, Sævari Þór Hilmarssyni, kt. [...], Kristnibraut 16, Reykjavík, „fyrir hótanir, með því að hafa, í tvígang á árinu 2014, hótað A, kt. [...], ofbeldi í neðangreindum fésbókarskilaboðum (facebook), sem ákærði sendi á fésbókarsíðu A, en efni umræddra  skilaboða var til þess fallið að vekja hjá A ótta um líf hans og velferð.

  1. Laugardaginn 29. mars 2014, kl. 19:38: „ þú ert nu meiri fokkking ræfillinn sökkerpunsar 60 kall og hleypur í burtu eins og fokkking hræ í öðrum skónum þetttaa er fokkking pabbi ég skal fokkking slatra þer fríkið þótt ég þurfi að eyða restinni af æviinni herna innni ég fokkking slatra þér fokkkking kryppplinguirnn þiinnn það er fokkking loforð “.
  2. Fimmtudaginn 3. apríl 2014,  kl. 21.45: „ [...] þú reðst a pabba minn af engri helvitis astæðu ef þið eruð að plana eh gegn pabba minum drep eg ykkur alla og þig first ekki vera svona heimskur af engri astæðu nóg að okkur lenti saman en þetta er komið gott  hvað a pabbi minn sem er 60 að nenna þurfa standa í svona kjaftæði hann er með fjölskyldu en eg lofa þer því [...]e g ersvo miklli pabba strakur að eg hugsa mig ekki tvisar um 16 ara dom fyrir hann svo þú vitir það bara láttu þetta kjurt ligggja “.

    Telst þetta varða við 233. gr. almennra hegningalaga nr. 19, 1940.

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

Málavextir

Þriðjudaginn 30. júní sl. kom til lögreglu A og kærði yfir því að hann hefði rúmu ári fyrr fengið tvenn skilaboð á „Facebook“ frá ákærða í máli þessu sem í fælust hótanir um líflát og hann áleit að ákærði hefði sent úr fangelsi þar sem hann var að afplána refsingu.  Afhenti hann afrit af þessum boðum.  Kvaðst hann hafa tekið þessar hótanir alvarlega en ekki hafa gert neitt í málinu þar sem ákærði væri í fangelsi.  Hann hefði svo mætt ákærða í Smáralind fyrir nokkrum dögum og orðið mjög skelkaður enda gengi ákærði ætíð vopnaður.  Með ákærða hefðu verið tveir menn sem hann nafngreindi  og sagði að hefðu verið með ógnandi tilburði.  Hefði hann áhyggjur sjálfs sín vegna og fjölskyldunnar.  Væri ákærði svo ruglaður að hann teldi sig vera rétt borinn til þess að taka við „konungsríki“ föður síns og sagðist telja að hann myndi ekki hika við að fremja morð til þess að viðhalda þeim virðingarsessi sem hann áliti fylgja slíkri stöðu.  Hann sagði mál þetta eiga sér rætur í gömlum deilum sínum við föður ákærða sem lögreglu væri kunnugt um.

Gerði A kröfu um að hinum seka yrði refsað.

Ákærði var yfirheyrður hjá lögreglu 6. júlí sl. að viðstöddum verjanda sínum og sagðist hafa verið að reyna að fá A til þess að láta föður sinn í friði en A hefði ráðist á föður hans, sem væri sextugur með unga fjölskyldu.  Væri ekkert á bak við þessar hótanir.  Um atvikið í Smáralind sagði hann að hann hefði ekki séð A þar og væri þetta endaleysa.  Hann kvaðst ekki þekkja A neitt og kvaðst ekki hafa átt í neinum öðrum illindum við hann.

Fyrir liggur í málinu vottorð fangelsismálastofnunar um það að ákærði sat í fangelsi á tímabilinu 3. janúar 2014 til 16. júní 2015.

Meðferð málsins fyrir dómi Ákærði, sem neitar sök, kveðst ekki hafa sent skilaboðin sjálfur þar sem hann hafi setið í fangelsi á þessum tíma og af þeim sökum ekki haft aðgang að internetinu.  Hafi hann fengið kunningja sinn til þess að gera þetta í sínu nafni og beri hann ábyrgð á þessum skeytum.  Hann kveðst ekki vilja segja til þessa manns. Hafi honum gengið það eitt til að fá A til þess að hætta árásum og áreitni í garð föður hans.

Nokkur vitni hafa komið fyrir dóminn, þ. á m. margnefndur A, faðir ákærða, B, og stjúpmóðir hans, C.  Ber geysimikið á milli skýrslna þessa fólks um deilur og væringar á milli þeirra A og B en ekki er ástæða til þess að rekja skýrslurnar í einstökum atriðum.

Niðurstaða

Ákærði neitar því að hafa sent skilaboðin sjálfur heldur fengið annan mann til þess þar sem hann sat í fangelsi, eins og áður segir.  Hefur þetta ekki sætt sérstakri rannsókn en með vísan til þess sem segir í 1. mgr. 42. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 49, 2005 þykir sá framburður hans vera trúverðugur og verður á honum byggt.  Ákærði   hefur   hins   vegar   sagst   bera   ábyrgð   á   skilaboðunum   og   í yfirheyrslunni hjá lögreglu gerði hann engan fyrirvara um efni þeirra, þegar þau voru borin undir hann.  Álítur dómurinn engan vafa leika á því að líflátshótanirnar í þeim séu runnar undan rifjum ákærða.  Skilaboð þessi voru til þess fallin að valda viðtakandanum ótta um líf sitt og velferð.  Telst ákærði hafa brotið gegn 233. gr. almennra hegningarlaga með því að láta senda A þau.

Refsing og sakarkostnaður Ákærði hefur að baki sér talsverðan sakaferil.  Hann var síðast dæmdur í maí 2014 í 16 mánaða fangelsi fyrir brot gegn vopnalögum, fíkniefnalögum og umferðarlögum.  Ýmisleg rafræn og skjalleg gögn sem lögð hafa verið fram í málinu benda til þess að þau B og C hafi mátt sæta umtalsverðum kárínum af hálfu A og að ákærði hafi haft ástæðu til þess að óttast um föður sinn og fjölskyldu hans. Þá er þess að gæta að brot ákærða var framið fyrir uppsögu síðasta refsidómsins en dómurinn telur auðsýnt að hann hefði ekki leitt til frekari refsingar fyrir hann en þar var tiltekin.  Verður honum því ekki gerð frekari refsing í þessu máli.

Dæma ber ákærða til þess að greiða verjanda sínum, Jóni Egilssyni hrl., 552.420 krónur í málsvarnarlaun að meðtöldum virðisaukaskatti.

Annan sakarkostnað hefur ekki leitt af málinu.

DÓMSORÐ:

Ákærða, Sævari Erni Hilmarssyni, er ekki gerð frekari refsing.

Ákærði   greiði   verjanda   sínum,   Jóni   Egilssyni   hrl.,   552.420   krónur   í málsvarnarlaun.

Pétur Guðgeirsson