Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

X

(Stefán Karl Kristjánsson hrl.) Mál þetta, sem dómtekið var 10. mars sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 13. október 2015, á hendur X, [...], fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, aðfaranótt föstudagsins 10. júlí 2015, ekið bifreiðinni [...] óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist tetrahýdrókannabínól 1,9 ng/ml) austur Rofabæ í Reykjavík uns aksturinn var stöðvaður í bifreiðastæði við Rofabæ 7, og ekki haft ökuskírteini meðferðis við aksturinn.

Eru brot þessi talin varða við 1. og 2. mgr. 45. gr. a og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006.

Er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar samkvæmt 101. og 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006.

Ákærði neitar sök. Krefst hann sýknu og að sakarkostnaður, þ.m.t. málsvarnarlaun, verði greiddur úr ríkissjóði.

Samkvæmt skýrslu lögreglu frá aðfaranótt föstudagsins 10. júlí 2015 var lögregla þá nótt kl. 02.58 á ferð vestur Rofabæ í Reykjavík. Í frumskýrslu kemur fram að lögregla hafi veitt athygli bifreið með skráningarnúmerið [...]. Hafi bifreiðinni verið ekið á móts við lögreglu og síðan inn á bifreiðastæði við Rofabæ. Hafi ökumaður lagt bifreiðinni í bifreiðastæði. Hafi lögregla ákveðið að kanna með ástand og ökuréttindi ökumanns. Lögreglumenn hafi gefið sig á tal við ökumann, ákærða í máli þessu, er hann hafi verið að fara út úr bifreiðinni. Hafi hann verið beðinn um að framvísa ökuskírteini. Þar sem ákærði hafi ekki verið með ökuskírteini meðferðis hafi hann verið beðinn um að ræða við lögreglumenn í lögreglubifreiðinni. Þar hafi vaknað grunur um að ákærði væri undir áhrifum fíkniefna. Hafi ákærði viðurkennt að hafa notað kannabis áður en akstur hófst. Hafi ákærða verið kynnt að hann væri handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Því næst hafi ákærði verið fluttur á lögreglustöð til sýnatöku. Hafi hann undirritað upplýsingablað handa þeim sem hefði verið handtekinn. Hann hafi gefið þvagsýni sem sýnt hafi jákvæða niðurstöðu gagnvart fíkniefnaprófi. Í framhaldi hafi hjúkrunarfræðingur komið á lögreglustöð og dregið úr ákærða blóðsýni vegna rannsóknar málsins.

Á meðal gagna málsins er eyðublað lögreglu vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þar kemur fram að 10. júlí 2015 hafi ákærði verið stöðvaður við akstur bifreiðar með skráningarnúmerið [...]. Sú háttsemi kunni að varða við 45. gr. a umferðarlaga nr. 50/1987 og varða sektum eða fangelsisrefsingu og sviptingu ökuréttar. Ef viðkomandi hafi athugasemdir fram að færa eigi hann að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000. Ákærði ritar undir eyðublað þetta.

Samkvæmt matsgerð Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði frá 24. júlí 2015 mældist í blóðsýni er tekið var úr ákærða greint sinn 1,9 ng/ml af Tetrahýtdrókannabínól. Við aðalmeðferð málsins gaf ákærði skýrslu fyrir dómi. Auk hans komu fyrir dóminn A og tveir lögreglumenn er stöðvuðu akstur ákærða greint sinn.

Ákærði hefur greint svo frá að umrætt sinn hafi hann verið farþegi í bifreiðinni […]. Ökumaður hafi verið kunningi ákærða, A. Bifreiðinni hafi verið ekið um Rofabæ í Reykjavík. A hafi stöðvað bifreiðina á bifreiðastæði og farið út úr henni og inn í nærliggjandi hús. Ákærði hafi setið í farþegasæti bifreiðarinnar. Læsing í hægri framhurð bifreiðarinnar hafi verið biluð og ekki hægt að opna hurðina. Hafi ákærði því farið út um vinstri framhurð bifreiðarinnar ökumannsmegin. Í þann mund er ákærði hafi farið út úr bifreiðinni hafi lögreglu borið að garði. Hafi ákærði verið handtekinn og færður á lögreglustöð grunaður um akstur bifreiðarinnar. Ákærði kvaðst ekki hafa tjáð lögreglu að A hafi ekið bifreiðinni. Hafi hann ekki séð ástæðu til að nefna það. Hafi honum fundist málið allt einkennilegt eða kjánalegt. Ákærði hafi ritað undir eyðublað á lögreglustöð vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá hafi verið tekið úr honum sýni til rannsóknar á innihaldi. Ekki hafi hann heldur þar séð ástæðu til að nefna þá að A hafi ekið bifreiðinni. Ákærði kvaðst hafa látið gera við hurð bifreiðarinnar farþegamegin eftir þetta. Hafi hann lagt fram í málinu kvittun því til stuðnings.

A kvaðst hafa ekið bifreið ákærða þetta kvöld. Vinkona A hafi búið í [...]. Hafi A lagt bifreiðinni í stæði og farið rakleitt inn í húsið. Hurð bifreiðarinnar farþegamegin hafi verið biluð og ákærði þurft að koma út ökumanns megin. A kvaðst hafa frétt síðar að lögregla hafi handtekið ákærða vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Ekki hafi A séð ástæðu til að gefa sig fram við lögreglu og greina frá því að hann hafi verið ökumaður bifreiðarinnar. Hafi hann ákveðið að bíða með að greina frá þessu þar til ákærði yrði boðaður í dóm vegna málsins.

Lögreglumenn er afskipti höfðu af akstri bifreiðarinnar [...] komu fyrir dóminn. Greindu þeir með sambærilegum hætti frá atvikum málsins. Kváðust þeir hafa verið á ferð um Rofabæ er þeir hafi veitt þessari bifreið athygli í akstri, en þeir hafi mætt henni. Hafi þeir ákveðið að kanna með ástand og ökuréttindi ökumanns. Hafi þeir snúið lögreglubifreiðinni við og ekið á eftir bifreiðinni. Hafi þeir misst sjónir af henni í örfáar sekúndur en séð þar sem henni hafi verið lagt í bifreiðastæði við Rofabæ og ökumaður stigið út. Hafi ökumaður verið að stíga út úr bifreiðinni er afskipti hafi verið höfð af honum. Enginn annar hafi verið á staðnum. Hafi verið rætt við ökumann í lögreglubifreiðinni. Hafi honum verið tjáð að hann væri grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Í framhaldi hafi hann verið færður á lögreglustöð þar sem hann hafi undirritað eyðublað vegna gruns um akstur undir áhrifum. Eins hafi verið tekin úr honum sýni til rannsóknar. Ökumaður hafi aldrei borið því við að einhver annar hafi ekið bifreiðinni greint sinn. Sáralitlar líkur væru á að annar en hinn grunaði hafi getað ekið bifreiðinni þar sem lögregla hafi einungis misst sjónar á henni í örstutta stund.

Niðurstaða:

Svo sem fyrr greinir neitar ákærði því að hafa ekið bifreiðinni […] aðfaranótt föstudagsins 10. júlí 2015. Kveður hann vin sinn A hafa ekið bifreiðinni. A kom fyrir dóminn og staðfesti að hafa ekið bifreiðinni.

Lögreglumenn þeir er afskipti höfðu af ákærða þessa nótt staðhæfðu fyrir dómi að nánast engar líkur væru á því að annar en ákærði hafi ekið bifreiðinni þessa nótt. Hafi engan annan verið að sjá á staðnum og hafi ökumaður verið að koma út úr bifreiðinni er lögreglumenn hafi komið að henni. Ákærði hefur gefið þá skýringu á því að hafa ekki greint lögreglu frá því að A hafi ekið bifreiðinni að honum hafi fundist málið einkennilegt eða kjánalegt. Þá kvaðst A ekki hafa gefið sig fram við lögreglu þar sem ákveðið hafi verið að greina ekki frá því fyrr en málið væri komið í dóm.

Að mati dómsins eru framburðir ákærða og A um þetta ótrúverðugir þar sem engin skynsamleg skýring er fram komin hjá þeim af hverju þeir hafi ekki upplýst lögreglu um hver hafi ekið bifreiðinni. Engum öðrum en ákærða var til að dreifa við bifreiðina […] þegar lögregla kom að ákærða. Voru afskipti höfð af ákærða svo til í beinu framhaldi af því að bifreiðinni var lagt í bifreiðastæði. Þegar þetta er virt telur dómurinn hafið yfir allan vafa að ákærði hafi verið ökumaður bifreiðarinnar umrætt sinn. Verður ákærði sakfelldur samkvæmt ákæru og er háttsemi hans þar rétt heimfærð til refsiákvæða.

Ákærði er fæddur í […] 1988. Ákærði hefur nú í þriðja sinn, eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma, verið fundinn sekur um að aka bifreið undir áhrifum áfengis eða óhæfur til að stjórna bifreið örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Með hliðsjón af því og dómaframkvæmd á þessu sviði þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga.

Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærði sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja.

Ákærði greiði sakarkostnað samkvæmt yfirliti. Þá greiði hann málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, svo sem í dómsorði er mælt fyrir um.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Jóhann Svanur Hauksson aðstoðarsaksóknari. Símon Sigvaldason héraðsdómari kveður upp dóminn.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, X, sæti fangelsi í 30 daga. Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja. Ákærði greiði 281.571 krónu í sakarkostnað, þ.m.t. málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar hæstaréttarlögmanns, 204.600 krónur.

Símon Sigvaldason

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 50/1987 Umferðarlög 45. gr. a1. mgr. 45. gr. a2. mgr. 45. gr. a1. mgr. 48. gr.1. mgr. 100. gr.
Lög nr. 44/1993 Lög um breyting á umferðarlögum, nr. 50 30. mars 1987. 25. gr.
Lög nr. 66/2006 5. gr.18. gr.