Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdóms Reykjavíkur 22. september 2014 í máli nr. S-638/2014: Ákæruvaldið (Hildur Sunna Pálmadóttir fulltrúi) gegn

X

(Hólmgeir Elías Flosason hdl.)

Mál þetta, sem dómtekið var 18. september síðastliðinn, var höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 12. ágúst síðastliðinn, á hendur X, Reykjavík

I.

„fyrir líkamsárás með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 5. maí 2013, utandyra við skemmtistaðinn […], Reykjavík, slegið A einu hnefahöggi í andlitið, með þeim afleiðingum að hlaut kinnbeinsbrot vinstra megin á andliti.

Telst brot þetta varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 111. gr. laga nr. 82/1998.

II.

fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 19. febrúar 2014, að […] í Reykjavík, haft í vörslum sínum í dreifingarskyni samtals 105,82 g af amfetamíni og 8,20 g af maríjúana, sem lögreglan fann við leit.

Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Krafist er upptöku á 105,82 g af amfetamíni og 8,20 g af maríjúana, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“

Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið brot þau sem honum eru gefin að sök í ákærunni og er játning hans studd sakargögnum. Það eru því efni til að leggja dóm á málið samkvæmt 1. mgr. 164. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Samkvæmt þessu verður ákærði sakfelldur fyrir brotin sem eru réttilega færð til refsiákvæða í ákærunni. Ákærði var dæmdur í 3 mánaða fangelsi, skilorðsbundið til 2 ára, 19, mars 2013 fyrir brot gegn 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga, umferðar- og fíkniefnalagabrot. Hann var sektaður fyrir fíkniefnalagabrot 11. febrúar 2014 og 7. mars sama ár var hann dæmdur í 4 mánaða fangelsi, skilorðsbundið til 2 ára, fyrir fíkniefnalagabrot. Fyrri dómurinn var tekinn upp og dæmdur með og refsingin höfð skilorðsbundin þrátt fyrir að um skilorðsrof væri að ræða. Með brotunum, sem ákærði hefur nú verið sakfelldur fyrir, rauf hann skilorð dómsins frá 19. mars 2013. Dómurinn frá 7. mars 2014 verður tekinn upp og dæmdur með þessu máli, sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga. Þá verður ákærða dæmdur hegningarauki, sbr. 78. gr. sömu laga og refsing hans ákveðin samkvæmt 77. gr. laganna. Að öllu þessu virtu verður refsing hans ákveðin fangelsi í 9 mánuði. Upptæk skulu vera 105,82 g af amfetamíni og 8,20 g af maríjúana.

Ákærði greiði 69.600 krónur í sakarkostnað og málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Hólmgeirs Elíasar Flosasonar hdl., 100.400 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Arngrímur Ísberg héraðsdómari kvað upp dóminn.

D ó m s o r ð :

Ákærði, X, sæti fangelsi í 9 mánuði. Upptæk skulu vera 105,82 g af amfetamíni og 8,20 g af maríjúana.

Ákærði greiði 69.600 krónur í sakarkostnað og málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Hólmgeirs Elíasar Flosasonar hdl., 100.400 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Arngrímur Ísberg

Heimildaskrá